Mörk menningarstofnana Margrét Elísabet Ólafsdóttir skrifar 22. febrúar 2011 00:01 Ólafur Gíslason skrifar í Fréttablaðið þann 25. janúar að ég hafi borið alvarlegar ásakanir á hendur Guðrúnu Kristjánsdóttur myndlistarkonu og sýningarstjóra í Hallgrímskirkju. Þessar ásakanir les Ólafur út úr pistli sem ég flutti í þættinum Víðsjá á RÚV þann 12. janúar. Þar fjallaði ég um myndlistargjörning þar sem komið var inn á mál tveggja sýninga sem hætt var við að setja upp í Listasafni Árnesinga og anddyri Hallgrímskirkju. Fram að svari Ólafs hafði enginn séð sér fært að bregðast við opinberum ásökunum Hannesar Lárussonar um að þessar stofnanirnir hefðu ritskoðað sýningar hans. Það er alvarlegt að ásaka aðra um ritskoðun jafnvel þótt hún sé „aðeins“ á sviði myndlistar, en þegar slíkar ásakanir eru einu sinni komnar á kreik í fjölmiðlum er hægt að ætlast til þess að málinu sé fylgt eftir. Í pistlinum minntist ég á þögnina sem ríkt hefur um ásakanirnar og vildi með því benda á að bæði fjölmiðlar og myndlistarheimurinn virtust ófær um að taka þær til málefnalegrar umfjöllunar. Það virðist litið svo á að hvorki söfnuðurinn í Hallgrímskirkju né íbúar Árnessýslu eigi rétt á að skilja hvað gerðist. Íslenskur myndlistarheimur kvartar gjarnan undan áhugaleysi almennings, en spyr ekki hvernig almenningur á að fá áhuga á einhverju sem er honum lokað. Ólafur Gíslason hefur með grein sinni varpað ljósi á að í Hallgrímskirkju hafi komið upp samstarfsörðugleikar þar sem skoðanir myndlistarmannsins og skipuleggjanda sýningarinnar fóru ekki saman. Samstarfsörðugleikar geta alltaf komið upp og fyrir þeim geta legið margvíslegar ástæður. Í þessu tilfelli eru myndlistarmenn minntir á að þeir eru ekki eyland í sínum störfum. Þeir þurfa að vinna innan ramma stofnana sem sýna verk þeirra og í samstarfi við sýningarstjóra og forstöðumenn. Vilji listamaðurinn ögra stofnuninni þarf hann að vinna hana á sitt band. Takist það ekki er stofnuninni í lófa lagið að koma í veg fyrir að hann fái að sýna. Í lokaorðum pistilsins á RÚV segir að aflýsing áðurnefndra sýninga varpi ljósi á þá staðreynd að menningarstofnanir þoli ekki að hvað sem er sé sagt í þeirra nafni. Hér er fast að orði kveðið en Ólafur staðfestir þetta. Ég tel að við hljótum að geta horfst í augu við að samfélag hvers tíma á sér mörk sem eftir á að hyggja geta virst óskiljanleg, en eru engu að síður til staðar. Þessi mörk eru ekki algild og fara eftir samhenginu en í tilfelli umræddra sýninga ákváðu forstöðumaður Listasafns Árnesinga og sýningarstjórinn í Hallgrímskirkju að virða ákveðin siðferðileg mörk og taka um leið fagurfræðilega afstöðu. Það er erfitt að tala um það sem maður hefur ekki séð en kjarni málsins í grein Ólafs er sá að Hannes neitaði að taka mörkin til greina. Hann reyndist hvorki sveigjanlegur né fær um að standa fyrir máli sínu með nægilega sannfærandi hætti til að þeir sem báru endanlega ábyrgð væru tilbúnir til að standa með honum. Af þessum sökum verður umræðan persónuleg og ómögulegt að ræða kjarna málsins, sem er sá að menningarstofnanir hafa sín mörk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Óþurftarverk Sú nýbreytni hefur verið tekin upp af Listvinafélagi Hallgrímskirkju að efna til sýninga í anddyri kirkjunnar þar sem framkvæmdinni er fylgt eftir með fræðilegum skrifum og sam 25. janúar 2011 06:00 Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Óþurftarverk Sú nýbreytni hefur verið tekin upp af Listvinafélagi Hallgrímskirkju að efna til sýninga í anddyri kirkjunnar þar sem framkvæmdinni er fylgt eftir með fræðilegum skrifum og sam 25. janúar 2011 06:00
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun