Rannsóknarnefnd skipuð vegna kynferðisbrota innan kaþólsku kirkjunnar 27. júní 2011 21:18 Pétur Bürcher hefur ákveðið að sjálfstæð rannsóknarnefnd að fyrirmynd rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar fjalli um ásakanir um kynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar. Mynd/GVA
Pétur Bürcher, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, hefur ákveðið að skipuð verði sjálfstæð rannsóknarnefnd sem fjalla mun um ásakanir um kynferðislega misnotkun innan kirkjunnar sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Pétur veitt Róberti Spanó, prófessor í lögfræði, umboð til að manna nefndina og útbúa það regluverk sem rannsóknarnefndin mun síðan vinna eftir. Pétur og nokkrir forystumenn kaþólsku kirkjunnar funduðu í dag um næstu skref en þeim fundi lauk á sjöunda tímanum í kvöld. Róbert var meðal þeirra sem sátu fundinn. Róbert veitti rannsóknarnefnd kirkjuþings forystu, en nefndin skilaði fyrir skömmu af sér skýrslu vegna kynferðisbrota Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups. Róbert er einnig formaður nefndar sem undanfarin ár hefur rannsakað starfsemi vistheimila ríkisins. Heimildir fréttastofu herma að Róbert hyggst ekki taka sæti í rannsóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar vegna tengsla sinna við hana. Ekki fengust upplýsingar um hversu margir munu eiga sæti í nefndinni né hversu langan tíma hún hefur til að rannsaka þær ásakanir sem fram eru komnar um kynferðisbrot innan kirkjunnar.
Tengdar fréttir Innanríkisráðherra svarar biskupi Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur svarað bréfi sem ritað var af lögmanni fyrir hönd biskups kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Ögmundur leiðréttir í bréfi sínu misskilning í bréfi kaþólsku kirkjunnar en þar sagði að dregist hefði að senda kirkjunni gögn frá ráðuneytinu sem vörðuðu meint gróf lögbrot af hálfu þjóna kirkjunnar og stofnana hennar á skjólstæðingum sínum. Frá þessu er greint á vef innanríkisráðuneytisins. 24. júní 2011 17:21 Fagráð taki fyrir ásakanir um kynferðislega misnotkun Kaþólska kirkjan á Íslandi fundaði í dag um ásakanir um kynferðislega misnotkun innan kirkjunnar sem fjallað hefur verið um undanfarið. Viðbrögð kirkjunnar er að vænta í kvöld eða í fyrramálið. 27. júní 2011 18:30 Allt að 14 rúður brotnar í biskupsbústaðnum Karlmaður var handtekinn við biskups- og prestsbústaðinn við Landakot í nótt eftir að hafa brotið fjölmargar rúður í bústaðnum. Séra Patrick Breen, staðgengill biskups kaþólsku kirkjunnar hér á landi, segir að maðurinn hafi brotið allt að 14 rúður í bústaðnum sem stendur við Hávallagötu í Reykjavík. 24. júní 2011 11:11 Viðurkenndi að hafa brotið rúðurnar Allt að fjórtán rúður voru brotnar húsi kaþólska biskupsins við Hávallagötu í Reykjavík í nótt. 24. júní 2011 18:25 Saka kaþólskan prest um kynferðislegt ofbeldi Mál tveggja manna sem saka presta og starfsmann kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um andlegt og kynferðislegt ofbeldi er til meðferðar hjá fagráði um kynferðisbrot. Annar mannana segir kennslukonu og skólastjóra Landakotsskóla hafa misnotað sig kynferðislega á löngu tímabili. Fjallað er um málið í Fréttatímanum í dag. Mál tveggja manna sem saka presta og starfsmann kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um andlegt og kynferðislegt ofbeldi er til meðferðar hjá fagráði um kynferðisbrot. Annar mannana segir kennslukonu og skólastjóra Landakotsskóla hafa misnotað sig kynferðislega á löngu tímabili. Mennirnir sem stíga fram og segja sögu sína í Fréttatímanum í dag eru um fimmtugt. Brot gegn þeim eru fyrnd og hinir meintu gerendur látnir. Annar maðurinn segist hafa orðið fyrir grófu kynferðislegu ofbeldi af hálfu sér A. George, sem var á þeim tíma skólastjóri Landakotsskóla, og Margrét Müller, þýskrar kennslukonu við skólann. Séra George var einn af valdamestu mönnum kaþólsku kirkjunnar hér á landi og sæmdur riddarakrossi fyrir störf sín. Margrét Müller var kennslukona við skólann. Hún bjó í einum af turnum skólans þar til hún svipti sig lífi. Lýsingar mannana, sem birtast í Fréttatímanum, eru sláandi. Þar er ofbeldið sagt hafa haldið áfram í sumarbúðum fyrir krakkana í Ölfusi. Í niðurlagi greinarinnar er sagt að fréttaflutningur á síðasta ári af kynferðisbrotum kaþólskra presta út í heimi hafi ýtt við mönnunum og fengið þá til að stíga fram með sögu sína. Þeir hafi skrifað Pétri Bürcher, biskupi kaþólikka hér á landi, bréf en fengið þau svör ekkert yrði aðhafst af hálfu kaþólsku kirkjunnar hér á landi. 17. júní 2011 11:52 Kaþólski biskupinn hafnar ásökunum um þöggun Það er rangt að halda því fram að kaþólski biskupinn á Íslandi hafa þagað yfir ásökunum á hendur starfsmönnum kaþólsku kirkjunnar um kynferðislegt ofbeldi. Þetta segir Pétur Bürcher, biskup kaþólsku kirkjunnar, í yfirlýsingu til fjölmiðla vegna umfjöllunar Fréttatímans um ásakanir á hendur fyrrverandi skólastjóra Landakotsskóla og samstarfskonu hans sem eru látin. 18. júní 2011 00:17 Kaþólski biskupinn tekur ásakanirnar alvarlega - dómstólar ákvarða sekt "Biskup tekur mjög alvarlega þær ásakanir sem fram eru bornar um kynferðislegt áreiti innan vébanda Kaþólsku kirkjunnar. Vill kirkjan af öllum mætti styðja við þá einstaklinga sem hlut eiga að máli og stendur öll sú þjónusta sem kirkjan hefur fram að bjóða þeim opin." 22. júní 2011 12:09 Biskupinn fundar um næstu skref Pétur Bürcher, biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, hefur átt fundi í dag um möguleg skref til að bregðast við þeim upplýsingum sem fram hafa komið um kynferðisbrot presta og starfsmanna kirkjunnar. Pétur hefur meðal annars rætt við Róbert Spanó, prófessor í lögfræði, sem veitti rannsóknarnefnd kirkjuþings forystu, en nefndin skilaði fyrr í mánuðinum af sér skýrslu vegna kynferðisbrota Ólaf Skúlasonar, fyrrverandi biskups. 24. júní 2011 16:33 Vonar að séra George sé í helvíti "Ef það er til helvíti, og mikið svakalega vona ég það, þá er hann þar. Hann var alveg skelfilegur maður. Hann talaði um að ef ég segði frá myndi mamma deyja." Þetta segir Iðunn Angela Andrésdóttir í viðtali í Fréttatímanum þar sem hún greinir frá kynferðislegu ofbeldi sem séra George, skólastjóri Landakotsskóla, beitti hana þegar hún var barn. Tvær konur stíga fram í Fréttatímanum í dag og greina frá því að séra Georg hafi misnotað þær kynferðislega þegar þær voru nemendur við Landakotsskóla. Angela segir skólastjórann hafa byrjað að misnotað sig þegar hún var tíu ára og að ofbeldið hafi staðið yfir í þrjú ár. "Hann þuklaði á mér, sleikti á mér eyrun, fór undir peysuna og þuklaði brjóstin á mér. Fór ofan í nærbuxurnar og stakk fingrunum inn í mig. Þegar ég var orðin aðeins eldri fór hann inn í fataherbergið og fróaði sér," segir Angela. Fréttatíminn greindi frá því í síðustu viku að fagráð um kynferðisbrot innan kirkjunnar hafi til meðferðar mál tveggja manna sem saka starfsmenn kaþólsku kirkjunnar um andlega og kynferðislega misnotkun. Í nýjasta tölublaðinu sem kom út í dag er umfjölluninni haldið áfram. Hin konan sem þar stígur nú fram, Rut Martine Unnarsdóttir, segir að sér hafi brugðið við að lesa lýsingarnar á ofbeldinu sem birtust í síðasta tölublaði Fréttatímans og að þær hafi ýtt við henni að segja frá sinni reynslu. Biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, séra Pétur Bürcher, sendi frá sér yfirlýsingu í liðinni viku vegna umfjöllunar Fréttatímans um kynferðisbrot starfsmanna kirkjunnar þar sem hann hafnaði ásökunum um þöggun. Hann sagðist taka ásakanirnar mjög alvarlega en velti því jafnframt upp hver væri réttur látinna einstaklinga sem sakaðir eru um þessi brot, en ásamt séra George var kennari við skólann, Margrét Müller sakaður um að hafa beitt nemendur ofbeldi. 24. júní 2011 10:12 Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Fleiri fréttir Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Tröppurnar við Grafarvogskirkju hreinsaðar Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Sjá meira
Innanríkisráðherra svarar biskupi Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur svarað bréfi sem ritað var af lögmanni fyrir hönd biskups kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Ögmundur leiðréttir í bréfi sínu misskilning í bréfi kaþólsku kirkjunnar en þar sagði að dregist hefði að senda kirkjunni gögn frá ráðuneytinu sem vörðuðu meint gróf lögbrot af hálfu þjóna kirkjunnar og stofnana hennar á skjólstæðingum sínum. Frá þessu er greint á vef innanríkisráðuneytisins. 24. júní 2011 17:21
Fagráð taki fyrir ásakanir um kynferðislega misnotkun Kaþólska kirkjan á Íslandi fundaði í dag um ásakanir um kynferðislega misnotkun innan kirkjunnar sem fjallað hefur verið um undanfarið. Viðbrögð kirkjunnar er að vænta í kvöld eða í fyrramálið. 27. júní 2011 18:30
Allt að 14 rúður brotnar í biskupsbústaðnum Karlmaður var handtekinn við biskups- og prestsbústaðinn við Landakot í nótt eftir að hafa brotið fjölmargar rúður í bústaðnum. Séra Patrick Breen, staðgengill biskups kaþólsku kirkjunnar hér á landi, segir að maðurinn hafi brotið allt að 14 rúður í bústaðnum sem stendur við Hávallagötu í Reykjavík. 24. júní 2011 11:11
Viðurkenndi að hafa brotið rúðurnar Allt að fjórtán rúður voru brotnar húsi kaþólska biskupsins við Hávallagötu í Reykjavík í nótt. 24. júní 2011 18:25
Saka kaþólskan prest um kynferðislegt ofbeldi Mál tveggja manna sem saka presta og starfsmann kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um andlegt og kynferðislegt ofbeldi er til meðferðar hjá fagráði um kynferðisbrot. Annar mannana segir kennslukonu og skólastjóra Landakotsskóla hafa misnotað sig kynferðislega á löngu tímabili. Fjallað er um málið í Fréttatímanum í dag. Mál tveggja manna sem saka presta og starfsmann kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um andlegt og kynferðislegt ofbeldi er til meðferðar hjá fagráði um kynferðisbrot. Annar mannana segir kennslukonu og skólastjóra Landakotsskóla hafa misnotað sig kynferðislega á löngu tímabili. Mennirnir sem stíga fram og segja sögu sína í Fréttatímanum í dag eru um fimmtugt. Brot gegn þeim eru fyrnd og hinir meintu gerendur látnir. Annar maðurinn segist hafa orðið fyrir grófu kynferðislegu ofbeldi af hálfu sér A. George, sem var á þeim tíma skólastjóri Landakotsskóla, og Margrét Müller, þýskrar kennslukonu við skólann. Séra George var einn af valdamestu mönnum kaþólsku kirkjunnar hér á landi og sæmdur riddarakrossi fyrir störf sín. Margrét Müller var kennslukona við skólann. Hún bjó í einum af turnum skólans þar til hún svipti sig lífi. Lýsingar mannana, sem birtast í Fréttatímanum, eru sláandi. Þar er ofbeldið sagt hafa haldið áfram í sumarbúðum fyrir krakkana í Ölfusi. Í niðurlagi greinarinnar er sagt að fréttaflutningur á síðasta ári af kynferðisbrotum kaþólskra presta út í heimi hafi ýtt við mönnunum og fengið þá til að stíga fram með sögu sína. Þeir hafi skrifað Pétri Bürcher, biskupi kaþólikka hér á landi, bréf en fengið þau svör ekkert yrði aðhafst af hálfu kaþólsku kirkjunnar hér á landi. 17. júní 2011 11:52
Kaþólski biskupinn hafnar ásökunum um þöggun Það er rangt að halda því fram að kaþólski biskupinn á Íslandi hafa þagað yfir ásökunum á hendur starfsmönnum kaþólsku kirkjunnar um kynferðislegt ofbeldi. Þetta segir Pétur Bürcher, biskup kaþólsku kirkjunnar, í yfirlýsingu til fjölmiðla vegna umfjöllunar Fréttatímans um ásakanir á hendur fyrrverandi skólastjóra Landakotsskóla og samstarfskonu hans sem eru látin. 18. júní 2011 00:17
Kaþólski biskupinn tekur ásakanirnar alvarlega - dómstólar ákvarða sekt "Biskup tekur mjög alvarlega þær ásakanir sem fram eru bornar um kynferðislegt áreiti innan vébanda Kaþólsku kirkjunnar. Vill kirkjan af öllum mætti styðja við þá einstaklinga sem hlut eiga að máli og stendur öll sú þjónusta sem kirkjan hefur fram að bjóða þeim opin." 22. júní 2011 12:09
Biskupinn fundar um næstu skref Pétur Bürcher, biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, hefur átt fundi í dag um möguleg skref til að bregðast við þeim upplýsingum sem fram hafa komið um kynferðisbrot presta og starfsmanna kirkjunnar. Pétur hefur meðal annars rætt við Róbert Spanó, prófessor í lögfræði, sem veitti rannsóknarnefnd kirkjuþings forystu, en nefndin skilaði fyrr í mánuðinum af sér skýrslu vegna kynferðisbrota Ólaf Skúlasonar, fyrrverandi biskups. 24. júní 2011 16:33
Vonar að séra George sé í helvíti "Ef það er til helvíti, og mikið svakalega vona ég það, þá er hann þar. Hann var alveg skelfilegur maður. Hann talaði um að ef ég segði frá myndi mamma deyja." Þetta segir Iðunn Angela Andrésdóttir í viðtali í Fréttatímanum þar sem hún greinir frá kynferðislegu ofbeldi sem séra George, skólastjóri Landakotsskóla, beitti hana þegar hún var barn. Tvær konur stíga fram í Fréttatímanum í dag og greina frá því að séra Georg hafi misnotað þær kynferðislega þegar þær voru nemendur við Landakotsskóla. Angela segir skólastjórann hafa byrjað að misnotað sig þegar hún var tíu ára og að ofbeldið hafi staðið yfir í þrjú ár. "Hann þuklaði á mér, sleikti á mér eyrun, fór undir peysuna og þuklaði brjóstin á mér. Fór ofan í nærbuxurnar og stakk fingrunum inn í mig. Þegar ég var orðin aðeins eldri fór hann inn í fataherbergið og fróaði sér," segir Angela. Fréttatíminn greindi frá því í síðustu viku að fagráð um kynferðisbrot innan kirkjunnar hafi til meðferðar mál tveggja manna sem saka starfsmenn kaþólsku kirkjunnar um andlega og kynferðislega misnotkun. Í nýjasta tölublaðinu sem kom út í dag er umfjölluninni haldið áfram. Hin konan sem þar stígur nú fram, Rut Martine Unnarsdóttir, segir að sér hafi brugðið við að lesa lýsingarnar á ofbeldinu sem birtust í síðasta tölublaði Fréttatímans og að þær hafi ýtt við henni að segja frá sinni reynslu. Biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, séra Pétur Bürcher, sendi frá sér yfirlýsingu í liðinni viku vegna umfjöllunar Fréttatímans um kynferðisbrot starfsmanna kirkjunnar þar sem hann hafnaði ásökunum um þöggun. Hann sagðist taka ásakanirnar mjög alvarlega en velti því jafnframt upp hver væri réttur látinna einstaklinga sem sakaðir eru um þessi brot, en ásamt séra George var kennari við skólann, Margrét Müller sakaður um að hafa beitt nemendur ofbeldi. 24. júní 2011 10:12