Ræktun erfðabreytts byggs utandyra Kesara Anamthawat-Jónsson skrifar 18. apríl 2011 06:00 Það er einkennilegt að ræktun erfðabreytts byggs utandyra skuli vera leyfð á Íslandi, áður en að óyggjandi niðurstöður á umhverfisáhættu liggja fyrir. Því er einnig einkennilegt að hópur 37 vísindamanna landsins skuli vera algjörlega sannfærður um að lítil hætta sé á genaflæði frá erfðabreyttum byggplöntum til óbreyttra plantna eins og fóðurbyggs sem ræktað er víða á landinu. Hvernig geta þeir verið vissir um að hættan á genaflæði sé hverfandi? Mig grunar að þessi sameiginlega skoðun þeirra byggi á rannsókn sem var gerð á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands á tímabilinu frá 2003 til 2005. Nú hafa niðurstöður þessarar rannsóknar verið birtar í tímaritinu IAS (Icelandic Agricultural Sciences 23, 2010, 51-59) í grein eftir Jónatan Hermannsson, Þórdísi A. Kristjánsdóttur, Tryggva S. Stefánsson og Jón Hallstein Hallsson. Greinin nefnist “Measuring gene flow in barley fields under Icelandic sub-arctic conditions using closed-flowering varieties”. En hvernig var “genaflæðið” mælt? Í grein Jónatans og félaga var genaflæði ekki mælt heldur túlkað. Tvíraða og sexraða byggplöntur voru látnar vaxa hlið við hlið og rannsóknin sýnir fram á að tveir blendingar hafi myndast í tilraunum á Möðruvöllum, en enginn blendingur fannst í tilraunum í Gunnarsholti. Þannig fengu þau víxlfrjóvgunartíðnina 0.002% í umhverfi Möðruvalla, en 0.0003% ef Gunnarsholt var með í útreikningnum. Lokaálit greinarinnar er svohljóðandi: “Það má telja að alfarið sé hægt að koma í veg fyrir flutning erfðaefnis milli byggyrkja með því að hafa lágmarksfjarlægð milli akra og viðhafa góð vinnubrögð í ræktunni.” Er hægt að draga ályktun um áhættu á genafræði út frá þessari rannsókn? Tvö byggsyrki voru notuð í rannsókninni: Golden Promise sem er tvíraða byggsyrki upphafslega frá Skotlandi (sama yrki og það sem er notað í framleiðslu lífvirkra prótína með erfðatækni) og Ven sem er sexraðabygg frá Noregi. Fyrst voru víxlarnir framkvæmdar í gróðurhúsi, þar sem sexraðabygg var notað sem móðir og tvíraðabygg sem frjókornagjafi. Í greininni er sagt að afkvæmi víxlanna sé með blendingssvipgerð. Á kornaxi blendingsplöntunnar þroskaðist korn aðeins betur í þeim röðum sem eru yfirleitt ófyllt í tvíraðabyggi, en í eðlilegum sexraðabyggi eru korn í öllum sex röðum fullþroskuð. Þetta sjónræna mat var síðan notað sem ótvírætt viðmið í leit að blendingum í útiræktunartilraunmum. Þannig fundust tvær plöntur með þessari svipgerð úr tilraunum á Möðruvöllum. Þessum tveimur plöntum var síðan leyft að vaxa og mynda fræ og plönturnar sem uxu af þessum fræjum voru tvær sexraða og 19 tvíraða byggplöntur. Höfundar greinarinnar ályktuðu að þetta væri enn frekar staðfesting á því að víxlfrjóvgun hafi átt sér stað á milli byggsyrkjanna. Þótt sérfræðigrein mín sé plöntuerfðafræði á ég erfitt með að skilja þessa tilraun. Af hverju var blendingsplöntum úr víxlunum ekki leyft að sjálffjróvgast til þess að kanna hvernig afkvæmi aðskiljast erfðafræðilega? Engin lýsing var sett fram um framkvæmd víxlana, engar tölur voru gefnar upp og tölfræði var hvergi beitt. Af hverju fannst ekki blendingssvipgerð meðal afkvæma blendingsplantna úr útiræktuninni? Hvernig vita höfundar að útlit blendinga sé ekki líka svipað og útlit foreldranna? Engin erfðafræðileg skýring er gefin í greininni, reyndar eru höfundar frekar uppteknir af því að sannfæra lesendur um að áhættan á genaflæði sé nánast engin, og vegna þess er talið óhætt að rækta erfðabreytt bygg utandyra. Er hægt að draga ályktun um áhættu á genafræði með því að athuga víxlfróvgun á milli fjarskyldra byggsyrkja? Tvíraða og sexraðabygg eru ólíkir hópar innan tegundarinnar Hordeum vulgare, en þeir hafa líklega aðskilist frá hvorum öðrum alls fyrir löngu. Sexraðabygg er talið hafa myndast af tvíraðabyggi í Miðausturlöndum fyrir um tíu þúsund árum. Hópi plöntuerfðafræðinga frá Japan, Þýskalandi og Svíþjóð hefur tekist að einangra gen sem skráir fyrir sexraða eiginleika byggs (Komatsuda et al. Proceedings of the National Academy of Sciences of the USA 104, 2007, 1424-29). Þetta gen, sem nefnist Vrs1 (vulgare six-rowed spike 1), er umritunarþáttur og sýnir víkjandi erfðir. Í tvíraðabyggi er genið tjáð og þar af leiðandi fullþroskast einungis tvær raðir af kornum, en í sexraðabyggi gerir óvirkt form gensins það að verkum að allar sex raðirnar fyllast af fullþroskuðum kornun. Gen sem skrá umritunarþætti, eins og Vrs1, geta haft stjórnunaráhrif á tjáningu margra gena samtímis – það þýðir að við höfum ekki hugmynd um hvernig útkoma víxlæxlunar væri á milli tvíraða- og sexraðabyggs. Auk þess virðist vera til fjöldi útgáfa af geninu og þær geta haft mismunandi áhrif á svipgerð. Til þess að fá öruggar niðurstöður um genaflæði er nauðsynlegt að greina tilvist framandi gens eða gena og meta tjáningu þeirra í viðtökuplöntum með sameindaerfðafræðilegum aðferðum. Mér er ekki kunnung um að þetta hafi verið gert. Ef svo er, eiga þessar niðurstöður að vera aðgengilegar. Áður en niðurstöður úr slíkum tilraunum liggja fyrir, getum við alls ekki sagt fyrir hvort hætta á genaflæði frá erfðabreyttu byggi til óbreyttra byggsplantna sé lítil eða mikil. Ég tel það ábyrgðarleysi hjá vísindamönnum og viðeigandi faghópum að gera ekki kröfur um fullnægjandi rannsóknir áður en alhæft er um áhrif í náttúrunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Hvers vegna ég segi nei við Icesave 9. apríl 2011 06:00 Mest lesið „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun