Gott lið orðið enn betra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2011 09:30 19 mörk á árinu. Íslenska kvennalandsliðið fagnar hér einu af 19 mörkum sínum í ár en þetta kom í stærsta sigri ársins, á Búlgaríu í maí. Fréttablaðið/stefán
alltaf sama varnarlínan Hallbera Guðný Gísladóttir, Fanney Friðriksdóttir, Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, Sif Atladóttir, Þóra Björg Helgadóttir og Katrín Jónsdóttir hlýða á íslenska þjóðasönginn. Hallbera, Ólína, Sif og Katrín byrjuðu alla níu leiki ársins.Fréttablaðið/vilhelm Stelpurnar okkar eru fyrir nokkru komnar í hóp bestu knattspyrnulandsliða heims og eru nú á góðri leið inn á sitt annað Evrópumót í röð. Það er samt óhætt að segja að liðið hafi stigið stórt skref upp metorðalistann í ár, sem var réttilega kallað af landsliðsþjálfaranum Sigurði Ragnari Eyjólfssyni besta ár kvennalandsliðsins frá upphafi. Íslenska kvennalandsliðið vann 7 af 9 landsleikjum ársins og eina tapið kom í úrslitaleik Algarve-bikarsins á móti Bandaríkjunum, liðinu sem skipar efsta sætið á styrkleikalista FIFA. Stelpurnar eru í efsta sæti í sínum riðli í undankeppni EM í Svíþjóð 2013. Byrjaðar að ná blettinum úrStelpurnar léku alls fimm mótsleiki á árinu, unnu fjóra og gerðu eitt markalaust jafntefli á heimavelli á móti Belgíu. Belgíuleikurinn er kannski eini bletturinn á annars skjannahvítu ári en stelpurnar eru byrjaðar að ná honum úr með því að vinna tvo síðustu leiki sína í undankeppninni og tryggja sér toppsæti riðilsins fram á nýja árið. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenska kvennalandsliðið tapar ekki mótsleik á ári sem stelpurnar spila fleiri en einn leik í undankeppni HM eða EM. Íslenska landsliðið vann reyndar eina mótsleik sinn fyrir 18 árum þegar það vann 2-1 sigur á Hollendingum á Laugardalsvellinum 26. september 1993. Frá þeim tíma hafði liðið alltaf þurft að sætta sig við að minnsta kosti eitt tap á hverju ári. Án Eddu, án HólmfríðarGott dæmi um hversu öflugt liðið er orðið er frammistaða liðsins seinni hluta ársins án brimbrjótsins Eddu Garðarsdóttur, sem hefur verið lykilmaður landsins í meira en áratug. Edda missti fyrst af leikjum vegna meiðsla og svo vegna veikinda. Stelpurnar unnu Noreg án hennar og kláruðu tvo fyrstu útileiki ársins án þess að fá á sig mark. Þetta er að sjálfsögðu leiðinlegt fyrir Eddu, sem gengur illa að ná 90. landsleiknum, en jafnframt skilaboð um hversu mikið breidd íslenska kvennalandsliðsins er að aukast. Annað dæmi um það er árangur íslenska liðsins í Algarve-bikarnum þar sem liðið náði silfrinu án Hólmfríðar Magnúsdóttur, markahæsta leikmanns liðsins árið á undan. Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur nú stjórnað íslenska liðinu til sigurs í 31 af 54 leikjum frá árinu 2007 og vantar nú aðeins einn sigur til að ná þeim tuttugasta í keppnisleik. Liðið hefur unnið 10 af síðustu 12 leikjum sínum í undankeppnum og markatalan í þeim leikjum er 27-2 íslenska liðinu í hag. Hann fékk stelpurnar strax til að stefna hátt og undir hans stjórn hefur sæti á stórmóti breyst úr því að vera aðeins draumur í það að vera fullgilt markmið liðsins. Varnarlínan alltaf einsSigurður Ragnar tefldi fram óbreyttri fjögurra manna varnarlínu í öllum níu leikjum ársins og það er enginn vafi um að stöðugleikinn fyrir framan Þóru Björg Helgadóttur í markinu á mikinn þátt í traustum varnarleik liðsins. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Sif Atladóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir voru fjórir af sex leikmönnum sem byrjuðu alla níu leiki ársins. Hinar voru hin óþreytandi Sara Björk Gunnarsdóttir á miðjunni og Margrét Lára Viðarsdóttir, sem skoraði 8 landsliðsmörk á árinu og sýndi sitt rétta andlit á nýjan leik. Sara Björk steig stóra skrefið út í atvinnumennsku og blómstraði með Svíþjóðarmeisturum Malmö og er fyrir löngu komin í kjarna íslenska liðsins. Útrás stelpnanna okkar hefur gert þeim og ekki síst landsliðinu gott og hver veit nema fleiri bætist í hópinn í vetur. Ára Þóru markvarðarÞað má heldur ekki gleyma liðsfélaga Söru Bjarkar, Þóru Björgu Helgadóttur í íslenska markinu, sem hefur nú haldið markinu hreinu í 10 af síðustu 12 landsleikjum sínum. Þóra hefur varið mark besta liðsins í Svíþjóð undanfarin tvö ár og á mikinn þátt í öruggum varnarleik íslenska liðsins bæði með frábærum töktum í markinu og eins með áru sinni fullri af sjálfstrausti og metnaði. Það verður erfitt að gera betur á næsta ári. Ekki gerum við kröfur á stelpurnar að vinna Algarve-bikarinn eða tapa ekki leik. Með því að tryggja sér sæti á EM 2013 munu stelpurnar okkar hins vegar sjá til þess að árið 2012 verði jafneftirminnilegt fyrir alla og árið sem er að líða.
Íslenski handboltinn Mest lesið Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Jorge Costa látinn Fótbolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Fleiri fréttir Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Natasha með slitið krossband Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra Sjá meira