Góð frammistaða Björgvins Páls ekki nóg Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. október 2011 14:49 Björgvin Páll í leik með Magdeburg. Nordic Photos / Getty Images
Björgvin Páll Gústavsson varði tólf skot þegar að Magdeburg tapaði fyrir Flensburg á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag, 31-28. Björgvin Páll byrjaði á bekknum en kom inn á þegar sjö mínútur voru liðnar af leiknum og staðan 5-3, Flensburg í vil. Gert Eijlers, hinn markvörður Magdeburg, hafði þá varið eitt skot. Björgvin Páll fékk því alls 26 mörk á sig í dag og með 46 prósenta hlutfallsmarkvörslu sem þykir afar öflug frammistaða í þýsku úrvalsdeildinni. Flensburg var skrefinu framar lengst af í leiknum en Magdeburg var þó aldrei langt undan. Staðan í hálfleik var jöfn, 17-17. Magdeburg komst svo yfir þegar stundarfjórðungur var til leiksloka, 25-24. Næstu mínúturnar voru heimamenn með undirtökin og var það ekki síst markvörslu Björgvins Páls að þakka. En sóknarmenn Magdeburg réðu hins vegar ekkert við gríðarlega öflugan varnarleik Flensburg og skoruðu ekkert á sjö mínútna kafla. Gestirnir gengu á lagið og þá sérstaklega línumaðurinn Michael Knudsen frá Danmörku sem skoraði alls tólf mörk í leiknum, þar af fjögur síðustu mörk Flensburg í leiknum. Leikmenn Flensburg leituðu sífellt inn á línuna á Knudsen sem brást ekki traustinu. Hann nýtti hvert einasta færi sem hann fékk síðustu fimm mínútur leiksins og tryggði sínum mönnum sigurinn. Flensburg er með fjórtán stig eftir sigurinn og er í fjórða sæti deildarinnar. Magdeburg er í áttunda sætinu með tíu stig en liðið hefur nú tapað þremur leikjum í röð.
Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira