Sigurður Bjarnason: Aron er í heimsklassa Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 14. janúar 2011 20:00 Aron Pálmarsson átti frábæran leik í dag. Mynd/AFP
Ég var bjartsýnn fyrir heimsmeistaramótið og eftir að hafa séð báða leikina gegn Þjóðverjum í Laugardalshöllinni um s.l. helgi þá var ég sannfærður um að við munum ná góðum úrslitum í fyrsta leiknum á HM," segir Sigurður Bjarnason sem var einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins í handbolta og er einn af þremur handbolta sérfræðingum visir.is. Við erum einfaldlega betri en Ungverjar og 32-26 sigur lofar góðu. Það var ótrúlegt að sjá baráttuna hjá íslenska liðinu. Ég hafði ekki stórar áhyggjur af þessum leik þar sem að Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er frábær í að undirbúa liðið. Þeir voru með allt á hreinu og vörnin er frábær. Björgvin Gústavsson markvörður svaraði líka gagnrýni með því að verja vel í mikilvægum leik. Hann lætur verkin tala. Það er mín tilfinning að landsliðshópurinn ætli sér stóra hluti en þeir ætla ekki að segja frá því. „Strákarnir okkar" eru með ótrúlegt sjálfstraust eftir silfur á ÓL 2008 og brons á EM 2010. Þeir vita að þeir geta náð árangri. Og Guðmundur er með frábært þjálfarateymi með sér. Þeir nýta sér nútímatækni og kortleggja andstæðinga frá A-Ö. Það er ekkert sem kemur Íslendingum á óvart.- ekkert. Ólafur Stefánsson hagar sér eins og hann sé tvítugur, hann er ótrúlegur. Ég veit ekki hvort þetta sé síðasta heimsmeistaramóti hjá Óla. Þþað er ekki hægt að segja neitt um það. Ólafur er einfaldlega með markmiðin á hreinu. Ólympíuleikarnir í London 2012 eru fyrir handan hornið og ég er ekki í vafa um að hann og liðið stefnir á að komast á ÓL. Aron Pálmarsson var frábær í leiknum. Hann skoraði átta mörk. Aron er að spila með einu af besta félagsliði heims og hann er með sjálfstraust sem er ekki hægt að lýsa. Aron er 21 árs en hann spilar eins og þaulreyndur landsliðsmaður. Það var frábært fyrir Ísland að Aron samdi við Kiel. Alfreð Gíslason þjálfari Kiel er með okkar efnilegasta leikmann alla daga á æfingum. Og niðurstaðan getur bara verið jákvæð. Aron er ekki að leika eins og nýliði. Hann lætur verkin tala og er í heimsklassa," segir Sigurður Bjarnason.
Mest lesið „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira