Íslenski boltinn

Ragnar Hauksson gengur til liðs við Þór

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ragnar í leik með KS/Leiftri gegn Völsungi
Ragnar í leik með KS/Leiftri gegn Völsungi Mynd/Guðný
Þórsarar hafa fengið liðstyrk fyrir átökin framundan í Pepsi-deild karla. Sóknarmaðurinn Ragnar Hauksson hefur gengið til liðs við félagið. Unnsteinn Jónsson formaður knattspyrnudeildar Þórs staðfesti þetta við Vísi fyrir stundu.

Þórsarar hafa skorað níu mörk í deildinni í sumar. Aðeins Fram og Víkingur hafa skorað færri mörk. Ef það er eitthvað sem Ragnar Hauksson kann fyrir sér þá er það að skora mörk.

Ragnar hefur leikið 226 leiki í íslenskri deildarkeppni og skorað í þeim 137 mörk. Ragnar er Siglfirðingur og hefur lengst af ferlinum leikið fyrir KS eða KS/Leifur. Undanfarið hefur hann spilað og þjálfað hjá KF þaðan sem hann kemur til Þórs.

Ragnar hefur reynslu úr efstu deild en reyndar eru tólf ár síðan. Hann spilaði með Skagamönnum á árunum 1997-1999.

Á heimasíðu Knattspyrnufélags Fjallabyggðar er fjallað um félagaskiptin:

„KF hefur heimilað Ragnari Haukssyni að skipta yfir í Þór. Raggi hefur verið þjálfari og aðstoðarþjálfari fyrir KF undanfarin ár og staðið sig með miklum sóma. Nú á dögunum leituðu Þórsarar eftir okkar heimild tilað fá að tala við Ragnar með það að í huga að hann kæmi til með að spila fyrir Þór út þetta tímabil. Tekið var jákvætt í þá beiðni.

Það hefur ávallt verið markmið KF að leiti úrvalsdeildarfélög eftir liðsinni okkar leikmanna, þá er litið á það sem spennandi tækifæri fyrir þá og við viljum ekki standa í veginum. KF hefur átt í góðu samstarfi við Þór í sumar og hefur m.a. verið með tvo leikmenn að láni og er vonast til að það samstarf gangi áfram vel.

Mikil eftirsjá verður af Ragnari sem bæði leikmaður og þjálfari, enda hefur hann verið okkar markahæsti leikmaður mörg undanfarin ár. KF vill að lokum þakka Ragnari fyrir hansgríðarlega mikla og góða framlag til félagsins og óskar honum alls hins besta hjá nýju félagi.

f.h. meistaraflokks

Hlynur Guðmundsson, framkvæmdastjóri KF"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×