Starfsmenn Vegagerðarinnar bíða átekta 21. maí 2011 21:33 Mynd/Helgi Vilberg Jóhannsson
Engin ákvörðun hefur verið tekin um að loka vegum vegna eldgossins sem hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli á sjöunda tímanum í kvöld. Starfsmenn starfsstöðva Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornarfirði bíða átekta. „Við fylgjumst með þróuninni," sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri í Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við fréttastofu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort loka þurfi vegum eða rjúfa skörð í vegi. Gosstrókurinn sést víða en hann hefur náð mikilli hæð og er dökkur neðst og ljós þegar ofar dregur, en sveiflast eftir því sem aska kemur upp með stróknum. Flugvél fór í loftið eftir klukkan átta í kvöld frá Reykjavíkurflugvelli en um borð eru m.a. fulltrúar almannavarna og vísindamenn. Gert er ráð fyrir að vélin lendi í Reykjavík upp úr klukkan 22 en þá ættu frekari upplýsingar að fást um stöðu mála.
Tengdar fréttir Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. 21. maí 2011 19:40 Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:41 Gosmökkurinn er rosa sjónarspil "Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:55 Tengja gosið ekki heimsendaspám Það hljóp aldeilis á snærið hjá gestum á Islandia Hótel á Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. Gestirnir, sem eru frá Hollandi og Frakklandi, auk Íslendinga, höfðu ekki átt von á því að verða vitni að eldgosi þegar þeir pöntuðu sér gistingu. Þeim brá því heldur betur í brún þegar Vatnajökull tók að gjósa um sjöleytið í kvöld. Líklegast er að það séu Grimsvötn sem gjósi, eins og fram hefur komið. 21. maí 2011 20:39 Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum 21. maí 2011 19:06 Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. 21. maí 2011 21:21 Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. 21. maí 2011 19:26 Flogið um Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir gosið Eldgosið í Vatnajökli kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að lenda á eða taka á loft á Keflavíkurflugvelli, segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia. 21. maí 2011 20:53 Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973. 21. maí 2011 20:13 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Sjá meira
Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. 21. maí 2011 19:40
Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:41
Gosmökkurinn er rosa sjónarspil "Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:55
Tengja gosið ekki heimsendaspám Það hljóp aldeilis á snærið hjá gestum á Islandia Hótel á Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. Gestirnir, sem eru frá Hollandi og Frakklandi, auk Íslendinga, höfðu ekki átt von á því að verða vitni að eldgosi þegar þeir pöntuðu sér gistingu. Þeim brá því heldur betur í brún þegar Vatnajökull tók að gjósa um sjöleytið í kvöld. Líklegast er að það séu Grimsvötn sem gjósi, eins og fram hefur komið. 21. maí 2011 20:39
Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum 21. maí 2011 19:06
Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. 21. maí 2011 21:21
Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. 21. maí 2011 19:26
Flogið um Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir gosið Eldgosið í Vatnajökli kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að lenda á eða taka á loft á Keflavíkurflugvelli, segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia. 21. maí 2011 20:53
Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973. 21. maí 2011 20:13