Tvö þúsund Danir hafa keypt miða á undanúrslitaleik Svía Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. janúar 2011 14:15 Nordic Photos / AFP
Ákvörðun mótshaldara á HM í Svíþjóð að sænska liðið muni spila sinn undanúrslitaleik í Malmö hefur slæmar afleiðingar í för með sér fyrir fjölmarga stuðningsmenn danska handboltalandsliðsins. Danmörk og Svíþjóð hafa bæði tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar en fyrirfram var ákveðið að annar undanúrslitaleikurinn færi fram í Malmö en hinn í Kristianstad. Nú hafa mótshaldarar ákveðið að Svíar muni spila sinn undanúrslitaleik í Malmö. Það kemur sér illa fyrir þá tvö þúsund stuðningsmenn danska liðsins sem hafa keypt sér miða á þann leik. „Þetta er algjör katastrófa," er haft eftir einum þeirra í Ekstra Bladet í dag. „Okkur var lofað því að Danir myndu spila alla sína leiki í Malmö. En nú hafa stuðningsmennirnir verið flæmdir þaðan í burtu." Malmö Arena tekur 12.500 áhorfendur í sæti en höllin í Kristianstad ekki nema 4500. Þeir sem eiga miða á leikinn í Malmö eru því ekki vongóðir um að geta skipt miðanum sínum fyrir miða á leikinn í Kristianstad. Mótshaldarar hafa lofað því að koma til móts við þessa tvö þúsund Dani en enginn virðist vita hvernig. Danir vilja að báðir undanúrslitaleikirnir verða spilaðir í Malmö en það virðist ólíkleg niðurstaða.
Mest lesið Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Formúla 1 United tilbúið að tapa miklu á Højlund Enski boltinn Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son Enski boltinn Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti Í beinni: Breiðablik - KA | Íslands- og bikarmeistarar eigast við Íslenski boltinn Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu Handbolti Marta mætti og bjargaði Brasilíu Fótbolti Tók Ara ekki nema tvær mínútur að skora Fótbolti Fleiri fréttir Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Sjá meira