Keane komst ekki til landsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. september 2011 14:34 Mynd/HAG
Ekkert varð að því að Roy Keane kæmi til landsins en Eggert Magnússon lenti á Keflavíkurflugvelli nú síðdegis. Til stóð að Keane myndi koma með honum til landsins. „Hann kemur ekki. Börnin hans eru í skóla og hann komst ekki af fjölskylduástæðum. Hann hefur þó áhuga að koma til landsins sem fyrst og vonandi gerir hann það," sagði Eggert við fjölmiðla sem biðu þeirra í Leifsstöð. Eggert segir að hann sjálfur hafi boðið Keane til landsins og vildi ekki staðfesta að hann hafi haft samband við Keane með það fyrir augum að koma af stað viðræðum um landsliðsþjálfarastarfið. „Ég er heiðursforseti KSÍ og er alltaf að vinna fyrir sambandið,“ sagði hann. „Við ætluðum að bjóða þeim hjónum til landsins en svo kom eitthvað upp á. Börnin eru að byrja í skóla og hann er mikill fjölskyldumaður. Hann er gamall félagi minn úr ensku knattspyrnunni og ég hef ekki rætt við hann um annað,“ sagði Eggert. „Það hefur því ekki verið rætt að hann muni taka að sér þetta starf. Hins vegar hafið hann áhuga á að koma og skoða land og þjóð. Það var meiningin að hann færi á bæði leikinn gegn Kýpur og á U-21 landsleikinn.“ „Ég hef ekkert nema gott um Roy Keane að segja. Hans ferill og það sem hann gerði bæði sem leikmaður með félagsliði og landsliði segir allt sem segja þarf. Ég vona að hann sjái sér fært um að þiggja boðið fyrr en síðar.“ Keane er einn þekktasti knattspyrnumaður heims en hann lék í tólf ár með Manchester United þar til hann fór frá félaginu árið 2005. Síðan þá hefur hann þjálfað lið Sunderland og Ipswich.
Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira