Bjarni: Það blómstruðu allir Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 29. ágúst 2011 22:11 Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar. Mynd/Daníel
Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar var hinn kátasti eftir að hafa stýrt liði sínu til stór sigurs á heimavelli gegn FH, 4-0. „Frábær innkoma í þennan leik sem skóp það að við náðum forystunni. Síðan eftir korter í fyrri hálfleik fannst mér við í tómu basli út hálfleikinn. Vorum langt frá mönnunum og óskynsamir. Við fórum of framarlega gegn þeim í stöðunni 1-0. Það var frábær markvarsla Ingvars sem hélt okkur inni í leiknum í fyrri hálfleik og upphafi seinni hálfleiks. Svo þegar við skoruðum annað markið þá blómstruðu allir,“ sagði Bjarni en Stjarnan var líklegri til að skora fimmta markið en FH að minnka muninn. „FH þurfti að koma framar á völlinn og við með þessa fljótu menn þarna frammi sem ógna stanslaust inn fyrir línuna. Það er ekkert grína að eiga við þessa menn. Ég vildi ekki vera bakvörður á móti þeim, enda var ég aldrei fljótur,“ sagði léttur Bjarni. FH þurfti að skipta um markvörð snemma í seinni hálfleik vegna meiðsla Gunnleifs og skömmu seinna opnuðustu flóðgáttir og Stjarnan skoraði þrjú mörk á átta mínútum. „Gunnar Sigurðsson er frábær markmaður en hefur ekki spilað mikið í sumar. Við áttum stórhættuleg færi fyrri utan þessi mörk sem við gerðum. Það er frábært að vinna þennan leik og frábært að fá ekki á sig mark, við fögnum því hér í Garðabæ.“ „Það sem einkennir okkur í seinni hálfleik er að við klárum leikina á algjörum krafti. Erum í fínum gír,“ sagði Bjarni sem vildi ekki meina að lið hans væri komið á fullt í baráttuna um Evrópusætið með þessum eina sigri. „Ég veit það nú ekki, við þurfum fyrst að ná þessu liði sem er fyrir ofan okkur og svo skulum við sjá hvað kemur upp úr kössunum í lok í september,“ sagði Bjarni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Sjá meira