Íslenski boltinn

Heimir: Gerðum barnaleg mistök

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Heimir Guðjónsson þjálfari FH.
Heimir Guðjónsson þjálfari FH. Mynd/Stefán
Heimir Guðjónsson þjálfari FH segir lið sitt hafa gert barnarleg mistök í leik sem hann leit á sem úrslitaleik um hvort FH gæti gert alvöru atlögu að Íslandsmeistaratitlinum þegar FH steinlá 4-0 gegn Stjörnunni.

„Við byrjuðum þennan leik illa. Við vorum á hælunum og spiluðum ekki neitt sérstaklega í fyrri hálfleik. Boltinn gekk hægt og það var of mikið af sendingum til baka. Samt sem áður fengum við mörg mjög góð færi í þessum leik og besti maður Stjörnunnar var Ingvar markmaður,“ sagði Heimir.

„Við gerðum okkur seka um mikið af barnalegum varnarmistökum sem urðu þess valdandi að Stjarnan skoraði þessi fjögur mörk,“ sagði Heimir sem vildi ekki taka undir að óöryggi hafi myndast í vörninni eftir Gunnleifur fór meiddur af leikvelli snemma í seinni hálfleik, mínútum áður en Stjarnan skoraði annað mark leiksins.

„Ég held að það hafi ekki verið vandamálið. Gunnar Sigurðsson hefur staðið sig frábærlega fyrir FH og hann kemur alltaf inn með góðan karakter og gríðarlegan talanda. Það var engin orsök.“

„Við látum menn hlaupa með boltann einhverja 40 metra og gerum ekkert í því. Það gengur aldrei,“ sagði Heimir sem er ekki bjartsýnn á að FH geti blandað sér í titilbaráttuna eftir þennan ósigur.

„Þetta var úrslitaleikur að mínu mati, hvort við kæmumst nálægt þessum liðum, KR og ÍBV, en við klúðruðum því.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×