Arnór Sveinn fer til Hönefoss - kvaddi Blika á twitter Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2011 11:05 Arnór Sveinn Aðalsteinsson fagnar hér marki með Blikum í sumar. Mynd/Pjetur
Arnór Sveinn Aðalsteinsson, leikmaður Breiðabliks, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Breiðablik í bili, því hann heldur til Noregs í dag til þess að skrifa undir samning við Hönefoss. Þetta kom fyrst fram á fótbolti.net. Arnór kvaddi á twitter-síðunni sinn áfram en hann skoðaði aðstæður hjá Hönefoss um síðustu helgi. „Kveð Ísland í bili. Þakka öllum blikum fyrir frábæran tíma #Blikahjarta," skrifaði Arnór á twitter-síðuna sína. Arnór er 25 ára gamall örfættur bakvörður sem hefur spilað allan sinn feril hjá Blikum. Hann hefur verið í kringum A-landsliðið undanfarin ár og var í leikmannahópnum á móti Ungverjalandi á dögunum. Arnór er ekki eini Íslendingurinn hjá Hönefoss því þar spilar einnig Kristján Örn Sigurðsson. Liðið er í fjórða sæti í norsku b-deildinni, fimm stigum á eftir toppliði Sandnes Ulf. Fréttatilkynning frá Breiðabliki: Knattspyrnudeild Breiðabliks náði nú í morgun samkomulagi við norska félagið Hönefoss um lán á Arnóri Sveini Aðalsteinssyni til áramóta. Knattspyrnudeildin harmar að geta ekki orðið fyrst til að flytja fréttir af atburðinum en sá sér ekki fært að tilkynna um félagaskiptin fyrr en öll atriði voru frágengin. Arnór Sveinn hefur lengi stefnt á atvinnumennsku og stóð það til boða nú. Knattspyrnudeild Breiðabliks samþykkti lán á leikmanninum eftir að Hönefoss gekk að skilmálum deildarinnar. Arnóri er óskað góðs gengis í Noregi á komandi mánuðum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira