Íslenski boltinn

Grindavík - FH einnig frestað

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr viðureign KR og Grindavíkur frá því fyrr í sumar.
Úr viðureign KR og Grindavíkur frá því fyrr í sumar. Mynd/Anton
Ákveðið hefur verið að fresta viðureign Grindavíkur og FH vegna veðurs og fara því aðeins fjórir leikir fram í Pepsi-deild karla í dag. Fyrr í morgun var viðureign ÍBV og KR einnig frestað.

Mikill rigning og sterkur vindur er í Grindavík og samkvæmt veðurspám mun veður versna eftir því sem líður á daginn.

Leikurinn á nú að fara fram klukkan 17.00 á morgun, rétt eins og viðureign ÍBV og KR á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×