Fyrsti fyrirliðinn yfir tíu marka múrinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. janúar 2011 07:00 Guðjón Valur setti met á móti Brössum. Fréttablaðið/Valli
Guðjón Valur Sigurðsson, tók við fyrirliðabandinu af Ólafi Stefánssyni fyrir Brasilíuleikinn á laugardagskvöldið og endurskrifaði síðan HM-sögu Íslands í leiknum. Guðjón skoraði nefnilega ellefu mörk og varð fyrsti fyrirliði Íslands frá upphafi sem nær því að brjóta tíu marka múrinn í úrslitakeppni HM. Guðjón Valur setti nýtt met þegar hann skoraði úr hraðaupphlaupi og kom íslenska liðinu í 26-21 í leiknum. Guðjón Valur skoraði mörkin sín ellefu á móti Brasilíu úr þrettán skotum en sjö þeirra komu úr hraðaupphlaupum. Guðjón Valur bætti þarna átta ára met Dags Sigurðssonar í leiknum en Dagur skoraði níu mörk í 33-29 sigurleik á móti Póllandi á HM í Portúgal 2003. Dagur skoraði 9 mörk úr 14 skotum en átta markanna skoraði hann með langskotum og eitt kom úr vítakasti. Dagur rak af sér slyðruorðið í þessum leik á móti Portúgal en hann hafði „aðeins" skorað samtals 7 mörk í fyrstu fimm leikjum Íslands á mótinu. Dagur hafði á sínum tíma bætt met Geirs Sveinssonar sem skoraði þrisvar sinnum sjö mörk í leik á HM þar sem hann bar fyrirliðabandið. Geir náði þessu á þremur heimsmeistarakeppnum í röð en enginn leikmaður hefur borið fyrirliðabandið í fleiri HM-leikjum en einmitt Geir. Ólafur Stefánsson hefur þrisvar sinnum skorað meira en tíu mörk í leik á móti en hefur ekki náð að brjóta tíu marka múrinn síðan hann tók við fyrirliðabandinu af Degi. Ólafur hefur mest skorað átta mörk með fyrirliðabandið en það gerði hann í tvígang á HM í Þýskalandi 2007.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira