Sturla: Menn mæta alveg trítilóðir í þennan leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. janúar 2011 16:15 Arnór Atlason og Ingimundur Ingimundarson taka á einum Japanum í gær. Mynd/AFP
Sturla Ásgeirsson er einn þriggja sérfræðinga Vísis um HM í handbolta en Ísland mætir Austurríki í kvöld. Sturla þekkir vel til í íslenska liðinu enda var hann bæði í silfurliðinu á Ólympíuleikunum í Peking og í bronsliðinu á EM í Austurríki í fyrra. Hann er bjartsýnn fyrir leikinn í kvöld. „Ég er nokkuð jákvæður fyrir þennan leik enda eru við búnir að sýna góða leiki í mótinu fram að þessu. Við höfum líka harma að hefna á móti Austurríki því þeir unnu okkur illa þarna í Austurríki um daginn. Ég held að menn mæti alveg trítilóðir í þennan leik staðráðnir í að sýna það að sjá leikur hafi verið mistök," sagði Sturla. „Austurríki er ekkert í sérstökum málum og þeir verða að vinna ef að þeir ætla að eiga einhvern möguleika á því að komast áfram. Ég held samt að við séum það ferskir í dag, með betra lið, betri liðsheild og með betri undirbúning. Við vinnum því þennan leik, kannski ekki örugglega en ég held að þetta verði aldrei neinn spennuleikur," segir Sturla. „Við höfum getað leyft okkur að skipta mönnum útaf og nánast allir leikmenn í liðinu hafa komið inn á í þessum leikjum sem náttúrulega frábært. Óli er búinn að hvíla í tvo leiki, hann ætti því að vera ferskur í kvöld og þá ætti að mæða minna á Alexander," segir Sturla.Sturla Ásgeirsson.Mynd/DIENER„Við verðum ekki alveg búnir að lesa usturríkismennina í kvöld eins og við lásum Japana í gær en ég held samt að undirbúningurinn eigi eftir að vera frábær og að við verðum með allt klárt," segir Sturla. „Austurríkismenn hafa fleiri vopn en Japanir. Ég held að við verðum jafn agressívir og í síðustu leikjum og förum vel út í skytturnar þeirra. Þá fá þeir ekki þetta svigrúm til þess að spila góðan leik," segir Sturla sem býst við því að Ísland fari með fullt hús inn í milliriðilinn. „Ég held að við stefnum á að vinna báða þessa leiki sem við eigum eftir í riðliunum til þess að geta farið með fullt hús inn í milliriðilinn. Við komust áfram ef við vinnum þenann leik en við ætlum ekki að láta það duga," sagði Sturla að lokum.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira