Valskonur halda áfram taki sínu á Fram - unnu sjö marka stórsigur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2011 21:03 Kristín Guðmundsdóttir skoraði sex mörk fyrir Val í kvöld. Mynd/Arnþór
Valur varð í kvöld fyrsta liðið til þess að vinna Fram í N1 deild kvenna á þessu tímabili en Íslandsmeistarnir unnu sjö marka sigur á Fram, 23-16 í Safamýrinni. Valskonur tryggðu sér sigurinn með frábærum seinni hálfleik sem liðið vann 12-3. Kristín Guðmundsdóttir var markahæst hjá Val með 6 mörk en Birna Berg Haraldsdóttir skoraði mest Framara eða 6 mörk. Það dugði ekki Framliðinu að Íris Björk Símonardóttir varði yfir 20 skot í leiknum. Fram var með frumkvæðið frá byrjun og leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 13-11. Birna Berg Haraldsdóttir skoraði sex mörk í hálfeiknum þar á meðal mark beint úr aukakasti þegar leiktíminn var liðinn. Valskonur lokuðu vörninni í upphafi seinni hálfleiks og náðu að jafna leikinn í 14-14 eftir tíu mínútna leik. Valur komst síðan yfir í 19-15 og var því búið að halfa Framliðinu í tveimur mörkum á 24 mínútum í seinni hálfleik. Valskonur höfðu unnið báða leikina á móti Fram í vetur, fyrst í Meistarakeppninni í september og svo í úrslitaleik deildarbikarsins í desemberlok. Framkonur höfðu hinsvegar unnið alla hin þrettán leiki sína á tímabilinu þar á meðal fjóra þeirra í Evrópukeppninni. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.
Olís-deild kvenna Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Sjá meira