Viðskipti innlent

Stefna að því að fá milljón ferðamenn til landsins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björgólfur Jóhannsson segir að margar ytri aðstæður gætu gert reksturinn í ár erfiðari. Mynd/ Vilhelm.
Björgólfur Jóhannsson segir að margar ytri aðstæður gætu gert reksturinn í ár erfiðari. Mynd/ Vilhelm.
Stefnt er að því að innan tíu ára muni milljón ferðamenn koma til Íslands á hverju ári. Í fyrra voru þeir um 500 þúsund. Þetta segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, í samtali við Vísi. Hann segir að til þess að þetta takist verði að vera hægt að kynna Ísland sem góðan áfangastað á veturna jafnt sem á sumrin.

Björgólfur segir að aðilar í ferðaþjónustunni séu að fjalla um þetta verkefni með ríkisvaldinu. „Það er í mínum huga ljóst að sumartíminn á Íslandi hefur ekki endalausa möguleika. Ég held að við ættum erfitt með að taka á móti milljón manns á sumrinu," segir Björgólfur, en bætir þó við að það væri ef til vill mögulegt með einhverjum aðgerðum. Hann segir að það sé sín skoðun að það verði að selja útlendingum tækifæri á Íslandi sem tengjast vetrinum. „Hvort sem það er myrkrið, Norðurljósin, snjórinn, vindurinn eða hvað það er. Kannski sjáum við ekki öll tækifærin sem eru alveg við tærnar á okkur," segir Björgólfur. Íslendingar hafi mikla menningu að bjóða, bæði tónlist og kvikmyndir, en náttúran sé samt alltaf árangursríkust, hvort sem það er sumar eða vetur.

Sóknin skilaði árangri

Icelandair Group skilaði metrekstrarhagnaði á síðasta ári, þrátt fyrir ýmis skakkaföll, eins og eldgosið í Eyjafjallajökli. „Í mínum huga tel ég það að árangurinn 2010 megi í raun þakka ákvörðunum frá árinu 2009 þegar við ákváðum þá að hefja sókn aftur," segir Björgólfur. Bætt hafi verið inn áfangastöðum eins og Seattle. Þá hafi tengifarþegum, sem voru á leið frá Ameríku til Evrópu, fjölgað mikið.

Björgólfur segir að Icelandair Group glími við margar erfiðar ytri aðstæður í rekstrinum núna. Nefnir hann sem dæmi hækkandi olíuverð og að samningar við allar starfstéttir séu lausir. Reksturinn ætti þó að geta gengið ágætlega. „En bókunarflæði er mjög gott heilt yfir og við erum svona tiltölulega bjartsýnir á sumarið heilt yfir af því gefnu að okkur takist að semja við allar okkar starfstéttir og að ytri aðstæður geri það ekki að verkum að olíuverð fari úr öllum böndum," segir Björgólfur.




Tengdar fréttir

Methagnaður hjá Icelandair Group

Hagnaður af rekstri Icelandair Group nam 4,6 milljörðum króna á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi félagsins sem kynntur var í dag. Sigurður Helgason, stjórnarformaður fyrirtækisins, segir í ávarpi sínu í ársskýrslunni að síðasta ár hafi verið það besta í sögu Icelandair Group. Velta fyrirtækisins hafi aukist um 10% á árinu og hafi numið 88 milljöðrum íslenskra króna í lok ársins. EBIDTA fyrirtækisins hafi verið 12,6 milljarðar en 8,1 milljarður árið undan.

Forstjóri Icelandair fékk 3,3 milljónir á mánuði

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, fékk greiddar 39,1 milljón króna í árstekjur á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi Icelandair Group sem birtur var í dag. Það jafngildir um 3,3 milljónum króna í mánaðartekjur. Sigþór Einarsson, aðstoðarforstjóri fékk greiddar um 1,9 milljónir í laun á mánuði.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×