Til tíðinda dregur í dauðariðlinum á HM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. janúar 2011 10:00 Heiner Brand, þýski landsliðsþjálfarinn, er undir mikilli pressu í heimalandinu. Nordic Photos / Bongarts
Ætli Þjóðverjar sér að gera alvöruatlögu að sæti í undanúrslitunum verða þeir að vinna ógnarsterkt lið Frakklands á HM í Svíþjóð í dag. Leikurinn hefur ekki síst mikla þýðingu fyrir íslenska liðið þar sem líklegt er að bæði lið munu mæta Íslandi í milliriðlakeppninni. Þýskaland tapaði fyrir Spánverjum í fyrradag og eru því búnir að mála sig út í horn. Ef Þjóðverjar tapa einnig fyrir Frökkum í dag má telja líklegt að þeir fari án stiga í milliriðlakeppnina og eigi þar með lítinn sem engan möguleika á sæti í undanúrslitum. Það eina sem gæti bjargað þeim þýsku er að Spánverjar tapi tveimur síðustu leikjum sínum í riðlinum og komist ekki í milliriðlakeppnina. Spánn mætir Egyptalandi í kvöld en með sigri Egypta galopnast riðillinn. Þjóðverjar munu að minnsta kosti halda með Egyptum í kvöld því ef bæði þessi lið komast áfram með Frökkum fær Þýskaland stigin tvö með sér sem liðið fékk fyrir sigurinn á Egyptum í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Frakkar eru öruggir með sæti í milliriðlakeppninni en þeir eru með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Þeir eiga þó eftir að mæta tveimur sterkustu andstæðingum sínum í riðlinum - Þýskalandi í dag og Spáni á morgun og er því enn algerlega óráðið hversu mörg stig þeir taka með sér til Jönköping. Spánverjar hafa unnið alla sína leiki en þeir lentu í vandræðum með bæði Túnisa og Þjóðverja. Þeir gætu líka lent í erfiðleikum gegn Egyptum í kvöld og þá verður viðureign þeirra gegn Frökkum á morgun alls ekki auðveld. Útlit er fyrir að lokaspretturinn í A-riðli verði afar spennandi því í raun eiga fimm af liðunum sex enn möguleika á því að komast áfram. Óskastaðan fyrir Ísland væri sú að Frakkar tapi öðrum leiknum sem þeir eiga eftir og að öll lið sem komist upp úr riðlinum fari hvert með tvö stig áfram. Stuðningsmenn íslenska landsliðsins skulu því fylgjast vel með í kvöld.
Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Fótbolti „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Enski boltinn Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira