Dramatískt jafntefli hjá Serbum og Króötum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. janúar 2011 19:11 Slavko Goluza, þjálfari Króatíu. Nordic Photos / AFP
Króatía tapaði sínu fyrsta stigi á HM í handbolta í kvöld er liðið gerði jafntefli við Serbíu, 24-24. Leikurinn var í járnum í hálfleik og skiptust liðin á að hafa forystuna. Staðan í hálfleik var 13-12, Serbum í vil. Króatar byrjuðu með látum í seinni hálfleik og skoruðu fjögur af fyrstu fimm mörkunum. Serbarnir neituðu þó að gefast upp og unnu sig hægt og rólega aftur inn í leikinn. Þeir voru með frumkvæðið síðustu tólf mínúturnar og tveggja marka forystu þegar sjö mínútur voru eftir en þá var staðan 24-22. Serbar skoruðu því ekki síðustu sjö mínútur leiksins og náðu Króatar að jafna þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Einn besti handboltamaður heims, Ivano Balic, fékk tækifæri til að tryggja Króötum sigur undir lokin en Darko Stanic markvörður frá honum. Hann varði alls þrettán skot í leiknum. Markahæstur hjá Serbíu var Ivan Nikcevic með sjö mörk og Marki Vujin kom næstur með fimm mörk. Igor Vori skoraði átta mörk fyrir Króatíu og Vedran Zrnic skoraði sjö. Króatar eru með sjö stig en Danir geta komist á topp C-riðils í kvöld með sigri á Alsír í kvöld. Serbar eru með fimm stig og eru öruggir áfram ef Alsír nær ekki stigi gegn Dönum í kvöld.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira