Hjartavernd tapaði rúmum 80 milljónum á viðskiptum við Landsvaka Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. desember 2011 15:27 Landsvaki var dótturfélag gamla Landsbankans. mynd/ valli.
Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að Landsvaka, dótturfélag gamla Landsbankans, er ekki skylt að greiða Hjartavernd tæpar 83 milljónir króna sem töpuðust þegar lokað var fyrir viðskipti með fjárfestingasjóði Landsvaka, sem nefndur var Peningabréf, þann 6. október 2008, daginn sem neyðarlögin voru sett. Hjartavernd óskaði eftir innlausn á hlutdeildarskírteinum sínum í fjárfestingarsjóðnum með tölvupósti rétt fyrir tíu þann dag, en pöntunin er skráð hjá Landsvaka klukkan tíu mínútur í fjögur. Á stjórnarfundi hjá Landsvaka sem haldinn var að morgni þessa dags og lauk klukkan 10 var tekin ákvörðun um að loka fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini sjóða sem áttu bréf á þau fjármálafyrirtæki sem fjármálaeftirlitið hafði lokað fyrir viðskipti með. Var þar meðal annars um að ræða alla peningamarkaðssjóði Landsvaka. Tekið er fram í fundargerð að lokun fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini sé gerð með hagsmuni hlutdeildarskírteinishafa að leiðarljósi og til að tryggja jafnræði þeirra. Hjartavernd byggði kröfuna sína fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á því að beiðni um innlausn hafi borist áður en ákvörðun var tekin um frestun á innlausn bréfa í Peningabréfum Landsvaka. Það er aftur á móti niðurstaða héraðsdómara að þær sérstöku aðstæður sem hafi verið til staðar á fjármálamarkaði hinn 6. október 2008 hafi orðið til þess að Landsvaka hafi verið heimilt að fresta innlausn hlutdeildarskírteina. Skipti þá ekki máli hvenær dags beiðni Hjartaverndar um innlausn barst enda liggi fyrir að ekki hafi verið opnað fyrir innlausnir hlutdeildarskírteina hjá stefnda þann dag eða síðar.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira