85% landsmanna vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni 10. desember 2011 18:46
Mikill meirihluti landsmanna eða um áttatíu og fimm prósent eru fylgjandi því að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni. Þetta sýnir ný skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Núgildandi aðalskipulag borgarinnar gerir ráð fyrir að byrjað verði að færa Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni árið 2016 eða eftir rúm fjögur ár. Strax þá á að loka tveimur flugbrautum. Flugvöllurinn á síðan að vera alveg farinn úr árið 2024. Fyrir rúmum áratug kusu borgarbúar um framtíð flugvallarins í Vatnsmýrinni. Þá vildi rétt rúmur helmingur að hann færi. Margt hefur breyst síðan þá en ný skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sýnir að nú vilja rúm áttatíu prósent borgarbúa að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni. Þannig eru 82% borgarbúa fylgjandi því að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni en 18% eru andvíg því. Nokkuð fleiri á landsbyggðinni vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni eða 88% en 12% eru því andvíg. Hringt var í rúmlega átta hundruð manns, sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá, dagana sjöunda og áttunda desember. Rúm nítíu og átta prósent tóku afstöðu til spurningarinnar. 54 % sögðust vera mjög fylgjandi því að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni, rúm 17% sögðust frekar fylgjandi því, 15% voru hlutlaus, rúm fimm prósent frekar andvíg og rúm átta prósent sögðust mjög andvíg því að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni. Af þeim sem voru annað hvort með eða á móti vildu 84% að flugvöllurinn verði áfram en 16% að hann fari.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira