Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - KR 72-60 Guðmundur Marinó Ingvarsson í Þorlákshöfn skrifar 20. nóvember 2011 20:49 Michael Ringgold var stigahæstur hjá heimamönnum í kvöld. Mynd / HAG
Þór frá Þorlákshöfn er komið með annan fótinn í undanúrslit Lengjubikarsins eftir ótrúlegan 72-60 sigur á Íslands- og bikarmeisturum KR í kvöld á heimavelli sínum. Ótrúlegur varnarleikur Þórs, sérstaklega í seinni hálfleik. gerði útslagið í kvöld en KR skoraði aðeins 25 stig í seinni hálfleik, þar af 10 í þriðja leikhluta þegar Þór náði yfirhöndinni í leiknum. KR vann fyrri leik liðanna með einu stigi og því hefur Þór betur í innbyrðisviðureignum liðanna í A-riðli Lengjubikarsins. Þór mætir fyrstu deildarliði Skallagríms í síðsta leik sínum í riðlinum og er því komið með annan fótinn inn í undanúrslitin en úrslitahelgin verður leikin á heimavelli KR í DHL-höllinni. KR byrjaði leikinn mun betur með frábæran varnarleik að vopni. Þór skoraði aðeins þrjú stig fyrstu sex mínútur leiksins og var sjö stigum undir 3-10. Þórsarar náðu að minnka muninn í tvö stig en KR var fjórum stigum yfir að lokum fyrsta leikhluta, 14-18. KR hóf annan leikhluta með látum náði fljótt átta stiga forystu, 14-22, og þegar leikhlutinn var hálfnaður var muninn kominn í 10 stig, 19-29. Hjá Þór munaði mikið um að Darrin Govens hafði fram að þessu verið úti á þekju í sóknarleiknum. Sniðskot geiguðu og hringurinn virtist lokaður þrátt fyrir opin færi. Þá skyndilega fóru skotin að detta hjá Þór og heimamenn náðu betri tökum á varnarleiknum. Hægt og rólega minnkuðu heimamenn muninn þar til aðeins munaði tveimur stigum í hálfleik, 33-35, og leikurinn í járnum. Ólíkt leikhlutum eitt og tvö hóf Þór seinni hálfleikinn af krafti og komst yfir, 37-35, með því að skora tvær fyrstu körfurnar. Eftir tæplega fjögurra mínútna leik í seinni hálfleik kom Michael Ringgold Þór fimm stigum yfir, 44-39, með kraftmikilli troðslu eftir hraðaupphlaup og þakið ætlaði af húsinu, slíkur var fögnuður Græna Drekans á áhorfendapöllunum. Hrafn Kristjánsson brást við með því að taka leikhlé og KR-ingar svöruðu kalli þjálfarans með að bæta í vörnina á nýjan leik og minnkuðu muninn í eitt stig, 44-43. Þá tók Benedikt Guðmundsson þjálfari Þórs leikhlé sem skilaði enn betri árangri því Þór skoraði 10 stig í röð og náði 11 stiga forystu, 54-43, þegar rétt rúmlega mínúta var eftir af þriðja leikhluta. KR skoraði síðustu körfu þriðja leikhluta og forysta Þórs því níu stig þegar fjórði leikhluti hófst. Þórsarar héldu áfram af sama krafti í upphafi fjórða leikhluta og náðu fjórtán stiga forystu, 62-48. Þann mun náði KR aldrei að brúa og Þór vann verðskuldaðan og öruggan sigur að lokum.Benedikt: Sætti mig við 60 stig „Þetta var baráttusigur. Það var þvílík barátta í liðinu og loksins er maður farinn að ná þessum varnaráherslum inn. Ég vissi alltaf að þó við værum undir í fyrri hálfleik að við myndum ná tökum á þessum leik um leið og við færum að hitta. KR var að spila hörku vörn. Þetta var varnarleikur í dag eins og við viljum hafa hann,“ sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR í leikslok. „Við erum í dauðafæri að ná inn í undanúrslitin. Við erum ekki komnir þangað inn, við þurfum að klára þann leik. Við spiluðum hörkuleiki við Skallagrím í fyrra sem báðir réðust í blá lokin þannig að ég ber ekkert nema virðingu fyrir Sköllunum,“ sagði Benedikt sem hefur engar áhyggjur af sóknarleiknum þegar varnarleikurinn er í þessu formi. „Við hittum illa. Bæði kaninn hjá mér og eins Tairu hjá KR. Hann tók reyndar mikið af erfiðum skotum en þetta var að dreifast vel. Mér er alveg sama þó við skorum ekki 80, 90 eða 100 stig á meðan við fáum á okkur 60 stig. Þeir skora þrist í lokin og þetta hefði getað litið ennþá betur út í 57 en 60, ég sætti mig alveg við það,“ sagði glaðbeittur Benedikt að lokum.Hrafn: Framkvæmum annað en talað er um „Stiga skorið sem slíkt segir ekki allt, það fer eftir hraðanum í leiknum en við vorum hreinlega lélegir. Flæðið var ágætlega með okkur í fyrri hálfleik og mér fannst við geta verið tíu stigum yfir í hálfleik en í þriðja leikhluta vorum við allt of soft. Þeir fá á sig dæmdar þrjár villur á móti ég veit ekki hvað mörgum hjá okkur og það skýrir sig á því að við vorum allt of veikir með boltann og að reka boltanum í einhverja vitleysu,“ sagði vægast sagt ósáttur Hrafn Kristjánsson þjálfari KR í leikslok. „Varnarleikurinn var ágætur í fyrri hálfleik og allt í lagi í seinni hálfleik. Við gerum samt slæma feila oft á tíðum. Við tölum um vissa hluti fyrir leikina og teljum okkur þekkja leikmenn ágætalega í hinu liðinu fyrir hvern einasta leik en það er helvíti hart að það sé síðan ekki framkvæmt sem talað er um.“ „Þetta er einhver einbeitingarþáttur. Það hefur verið gangurinn á þessu KR liði að vinna annað hvert á og ég veit ekki alveg hvað málið er en ég ætla rétt að vona að fólk sé ekki búið að éta yfir sig á einum titli og geti sig ekki hreyft núna,“ sagði Hrafn sem gerir sér ekki miklar vonir um að Þór misstígi sig gegn Skallagrími í lokaleiknum og KR komist á undraverðan hátt í undanúrslitin. „Við vinnum á klukkunni og skrifum skýrslurnar. Við höldum þetta blessaða fjögurra liða mót og það er bara gott á okkur,“ sagði Hrafn að lokum.Þór Þorlákshöfn-KR 72-60 (14-18, 19-17, 21-10, 18-15)Þór Þorlákshöfn: Michael Ringgold 21/12 fráköst, Darri Hilmarsson 12/4 fráköst/5 stoðsendingar, Guðmundur Jónsson 11/6 fráköst, Darrin Govens 9/7 fráköst/7 stoðsendingar, Marko Latinovic 9/5 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 5, Grétar Ingi Erlendsson 5/6 fráköst.KR: Edward Lee Horton Jr. 24/6 fráköst/5 stoðsendingar, David Tairu 11/4 fráköst, Hreggviður Magnússon 8/9 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 4, Martin Hermannsson 4, Finnur Atli Magnusson 4/6 fráköst, Emil Þór Jóhannsson 3/5 fráköst, Ólafur Már Ægisson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Joshua í bílslysi þar sem tveir létust Sport Þetta er vitað um banaslysið sem Anthony Joshua slapp lifandi úr Sport Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti „Þegar þú spilar við Gary Anderson er alltaf pláss fyrir flugeldasýningu“ Sport Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn Strákarnir komnir í úrslit á Sparkassen Handbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Fleiri fréttir Leonard aldrei skorað meira en í nótt „Ef ég væri jafngamall og hún væri ekki séns að ég væri að setja þetta skot ofan í“ Ótrúleg tölfræði Jokic Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Tapaði fyrir Barcelona Njarðvík búin að losa sig við De Assis Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Elvar stigahæstur en fékk ekki sigur í jólagjöf Martin mættur aftur inn á völlinn og liðið hans endaði taphrinuna Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Meisturunum fatast flugið „af því hitt liðið er betra“ Jólagleði í Garðinum Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Stórstjarna úr WNBA-deildinni í heimsókn á Íslandi ÍR-ingar bæta við sig reyndum og hittnum Króata Í bann fyrir að kasta flösku í barn Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Kolbrún María kom við sögu í endurkomu Hannover Næstframlagshæstur í grátlegu tapi Fékk næstum 4,5 milljóna króna sekt fyrir að sýna dómara fingurinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum Jokic tók NBA-met af Abdul-Jabbar í nótt KR á frábærum stað en getur ekki unnið titilinn Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ Sjá meira
Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum