Viðskipti innlent

Tæpur helmingur byrjaður að kaupa jólagjafirnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jólaverslun er jafnan góð.
Jólaverslun er jafnan góð. mynd/ teitur.
Um 46,1% eru byrjaðir að versla inn jólagjafir fyrir jólin í ár, samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR. Meirihlutinn, eða um 54%, er þó ekki byrjaður að versla jólagjafir.

Samkvæmt könnuninni var nokkur munur á því hvort fólk væri byrjað að versla inn jólagjafir fyrir jólin í ár eftir aldri, tekjum og sérstakelga eftir kyni. Af þeim sem tóku afstöðu voru konur í nokkrum meirihluta þeirra sem voru byrjuð að kaupa inn jólagjafir eða 56,8% kvenna borið saman við 35,3% karla.

Könnunin var gerð dagana 10-14. nóvember. 879 manns svöruðu könnuninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×