Viðskipti innlent

Glitnir greiðir upp 173 milljarða lán

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Steinunn Guðbjartsdóttir er formaður slitastjórnar Glitnis.
Steinunn Guðbjartsdóttir er formaður slitastjórnar Glitnis.
Glitnir hefur greitt upp að fullu eftirstöðvar skulda við Seðlabanka Lúxemborgar að upphæð 173 milljarðar króna. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu sem Glitnir og Seðlabankinn gáfu út í dag. Með því er mikilvægum áfanga náð í endurskipulagningu dótturfélags Glitnis í Lúxemborg, segir í yfirlýsingu frá Glitni.

Í yfirlýsingu frá Glitni segir að í mars 2009 hafi endurskipulagningu dótturfélags Glitnis í Lúxemborg lokið með uppgjöri millibankaskulda og við innstæðueigendur. Þá hafi bankinn staðið eftir sem eini kröfuhafinn, með kröfu upp á rúmlega 1 milljarð evra, eða 173 milljarða íslenskra króna, sem tryggð var með veði í umtalsverðu eignasafni.  








Fleiri fréttir

Sjá meira


×