Viðskipti innlent

Kaupþing kærir til Hæstaréttar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slitastjórn Kaupþings ætlar að kæra til Hæstaréttar úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að leitað verði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins á því hvort slitameðferð samræmist reglum um EES. Dómurinn kvað upp úrskurð sinn í gær. Málið tengist kröfu sem Anglo Irish Bank á Írlandi gerir á hendur Kaupþingi upp á samtals 15 milljónir evra.

Bankinn hafnaði kröfunum með þeim rökum að tölvupóstur sem Anglo Irish Bank sendi í lok október 2008 gæti ekki talist kröfulýsing í skilningi laga um gjaldþrotaskipti og laga um fjármálafyrirtæki. Ekki náðist samkomulag um kröfuna á kröfuhafafundi og því ákvað Anglo Irish Bank að stefna Kaupþingi.

EFTA dómstóllinn mun veita ráðgefandi álit um það hvort það samræmist tilskipun Evrópusambandsins að birta innköllun til þekktra lánadrottna í ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins með þeim hætti sem Kaupþing gerði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×