Viðskipti innlent

Mál gegn Kaupþingi og Milestone komin lengst

Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari bankahrunsins.
Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari bankahrunsins. mynd úr safni
Rannsókn á málefnum fjárfestingarfélagsins Milestone og rannsókn á markaðsmisnotkun í Kaupþingi banka eru þau mál sem eru lengst komin hjá sérstökum saksóknara. Rannsóknum ætti að ljúka fyrir árslok.

Á þeim þremur árum sem liðin eru frá bankahruni og tveimur og hálfu ári frá því sérstakur saksóknari tók til starfa hefur embættið gefið út ákærur í tveimur málum. Svokölluðu Exeter-máli og máli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra.

Samkvæmt heimildum fréttastofu eru tvö önnur mál mjög langt komin og það langt komin að nú sér fyrir endann á rannsóknum þeirra. Annars vegar er um að ræða rannsókn á málefnum fjárfestingarfélagsins Milestone og hins vegar þeim hluta Kaupþingsrannsóknar er lýtur að fjárfestingu sjeik Mohamed Bin Khalifa Al-Thani í bankanum, en þar er grunur um markaðsmisnotkun. Helstu stjórnendur Kaupþings hafa verið ítrekað yfirheyrðir í málinu en þeir hafa alltaf haldið því fram að um eðlileg viðskipti hafi verið að ræða með áhættu sjeiksins.

Rannsókn á málefnum fjárfestingarfélagsins Milestone og tryggingafélaginu Sjóvá sem var dótturfélag þess, hófst með húsleit sérstaks saksóknara í júlí 2009 en málið hafði áður verið til rannsóknar hjá FME. Bæði Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, og Karl Wernersson, fyrrverandi stjórnarformaður Milestone, eru grunaðir um refsiverða háttsemi og hafa því réttarstöðu sakborninga í málinu. Í málinu eru til rannsóknar brot á lögum um vátryggingarstarfsemi og umboðssvik samkvæmt almennum hegningarlögum.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er rannsókn á málefnum Milestone og Sjóvár það mál sem lengst er komið hjá embætti sérstaks saksóknara, sem ekki hefur verið ákært í.

Fréttastofa náði í dag tali af Karli Wernerssyni, en hann vildi ekkert tjá sig um málið. Þá vildi hann ekki hlýða á spurningar fréttastofunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×