Baldur: Eins og bikarúrslitaleikur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. september 2011 20:10
Baldur Sigurðsson skoraði tvö mörk í 3-2 sigri KR á Keflavíkur og átti heilt yfir mjög góðan leik. Hann hrósaði þó varamanninum Aroni Bjarka Jósepssyni sem skoraði sigurmark KR í uppbótartíma leiksins. „Þetta voru tvö mörk sem hefðu bara dugað fyrir einu stigi ef Aron hefði ekki komið inn og skorað sigurmarkið. Ég vil því hrósa honum fyrir þetta frábæra mark,“ sagði Baldur en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Þetta var virkilega dramatískt en það er alltaf gaman að koma hingað til Keflavíkur og vinna hér. Við tökum þessu,“ bætti hann við. „Við byrjuðum alveg hrikalega og þeir komust í frábæra sókn sem þeir skoruðu úr. Svo tökum við öll völd í svona hálftíma, skorum mark, en erum svo slakir síðasta korterið. Við vorum bara þokkalega heppnir með að fara þó með stöðuna 1-1 inn í búningsklefann eftir fyrri hálfleikinn.“ „Við byrjum svo mjög vel í seinni hálfleik og komumst svo verðskuldað yfir. Ég hefði svo sem getað skorað eitt til viðbótar eftir gott samspil við Kjartan.“ „En svo virðist sem að það gerist eitthvað. Þessi leikur var eins og bikarúrslitaleikur fyrir okkur enda mjög mikið í húfi. Við hleyptum þeim inn í leikinn og þeir áttu skilið að skora jöfnunarmarkið.“ „En svo settum við smá pressu á þá í lokin og það borgaði sig. Sem betur fer því það hefði verið hrikalega svekkjandi að missa af tækifæri til að ná þriggja stiga forystu á toppnum.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira