Umfjöllun: Heimir tefldi djarft og tapaði Henry Birgir Gunnarsson á Stjörnuvelli skrifar 15. september 2011 14:48 Mynd/Vilhelm
Stjörnumenn skutu Eyjamenn niður úr toppsæti Pepsi-deildarinnar í kvöld er þeir unnu góðan 3-2 sigur á teppinu. Stjarnan því enn í baráttunni um Evrópusæti en Eyjamenn verða að vinna KR á sunnudag til að halda alvöru lífi í titilvonum sínum. Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, tefldi djarft með því að geyma Tryggva Guðmundsson og Finn Ólafsson á bekknum í kvöld. Sú ákvörðun kom í bakið á honum því allan slagkraft vantaði í sóknarleik liðsins lengstum. Tryggvi er hjartað í þessu Eyjaliði og mér finnst það óskiljanlegt að Heimir hafi leyft sér þann munað að geyma Tryggva ómeiddan á bekknum eins lengi og hann gerði. Það kom líka ekki alvöru kraftur í sóknarleik ÍBV fyrr en Tryggvi var kominn inn og að sjálfsögðu skoraði hann. Útspil hins snjalla þjálfara Eyjamanna gekk því alls ekki upp í kvöld. Ég tek ekkert af Stjörnumönnum sem eru með magnað lið og leikir þeirra eru ítrekað skemmtilegustu leikirnir í hverri umferð. Leikur liðanna í kvöld var kaflaskiptur. Mikið fjör á köflum en síðan datt allur botn úr leik liðanna þess á milli. Stjarnan nýtti föstu leikatriðin vel en sigurmarkið kemur síðan úr afar umdeildri vítaspyrnu. Ofanrituðum fannst þetta aldrei vera víti þaðan sem hann sat en Kristinn Jakobsson dómari var afar viss í sínni sök. Þó svo vítið hafi verið umdeilt þá verður að viðurkennast að ÍBV lék alls ekki nógu vel til þess að verðskulda þrjú stig í kvöld.Stjarnan-ÍBV 3-2 Áhorfendur: 876 Dómari: Kristinn Jakobsson 4. Skot (á mark): 11-8 (3-4) Varin skot: Ingvar 2 – Albert 0 Horn: 6-7 Aukaspyrnur fengnar: 9-6 Rangstöður: 5-9
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira