Mikil aukning í notkun áls í bílaiðnaði 9. september 2011 14:13 Þegar Audi ákvað að styðjast við ál að öllu leyti í yfirbyggingu Audi A8 árið 1994 lækkaði þyngd yfirbyggingarinnar úr 441 kg í 247 kg. Mynd/Wikimedia
Álnotkun í bandarískum bílaiðnaði mun aukast um allt að 70% fram til ársins 2025 samkvæmt nýlegri könnun. Í tilkynningu frá Samáli, samtökum álframleiðenda hér á landi segir að svipuð þróun sé að eiga sér stað hjá evrópskum og japönskum bílaframleiðendum. Líklegt er talið að þessi þróun leiði til tvöföldunar á álnotkun í framleiðslu bifreiða og muni hún nema um 14 milljónum tonna á ári 2020. „Sívaxandi kröfur um sparneytnari bifreiðar mun auka verulega notkun áls við bílaframleiðslu í Bandaríkjunum. Að meðaltali verða notuð 150 kíló af áli í hverja bifreið sem framleidd verður fyrir Bandaríkjamarkað árið 2012, eða sem samsvarar um 5% aukningu frá 2009. Samkvæmt könnun sem gerð var meðal bandarískra bílaframleiðenda er gert ráð fyrir að árið 2025 verði álnotkun í bílaiðnaði að meðaltali um 250 kg, eða sem samsvarar tæplega 70% aukningu frá 2009,“ segir ennfremur. Þá er þess getið að hvert kíló af áli sem notað sé við smíði bifreiðar í stað stáls létti bifreiðina að jafnaði um 1 kg. „Miðað við ofangreindar áætlanir mun aukin notkun áls í bandarískum bílaiðnaði létta bifreiðarnar um liðlega 100 kíló. Áætlað er að fyrir hver 100 kíló sem bifreið er létt um sparist 9 g af CO2 á hverja 100 ekna kílómetra.“ „Svipuð þróun á sér stað í evrópskum og japönskum bílaiðnaði. Þannig hafa japönsk stjórnvöld nýverið sett bílaframleiðendum þar í landi það markmið að minnka eldsneytiseyðslu japanskra bifreiða um 24% fyrir árið 2020. Þessi þróun mun stuðla að umtalverðri aukningu í álnotkun í bílaiðnaði. Gert er ráð fyrir því að árið 2020 muni árleg notkun áls í bílaiðnaði nema nærri 14 milljónum tonna samanborið við um 7 milljónir tonna í dag. Heimsframleiðsla á áli mun í ár nema um 40 milljónum tonna,“ segir einnig. „Í bílaiðnaði er algengast að ál sé notað í húdd, skottlok og hurðir auk vélarhúss. Þó eru umtalsverðir möguleikar til enn frekari notkunar. Sem dæmi má nefna að þegar Audi ákvað að styðjast við ál að öllu leyti í yfirbyggingu Audi A8 árið 1994 lækkaði þyngd yfirbyggingarinnar úr 441 kg í 247 kg. Að auki tókst fyrirtækinu að spara um 45 kg til viðbótar í þyngd bifreiðarinnar þar sem unnt var að minnka vélarstærð og stærð eldsneytistanks. Alls var því unnt að létta bílinn um 240 kg með notkun áls í stað stáls.“
Mest lesið Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira