Íslenski boltinn

Guðmundur Reynir æfir með Brann

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðmundur Reynir hefur farið á kostum með KR í sumar.
Guðmundur Reynir hefur farið á kostum með KR í sumar. Mynd / Anton
Guðmundur Reynir Gunnarsson, vinstri bakvörður KR, er um þessar mundir við æfingar hjá norska félaginu Brann í Bergen. Fjallað er um Guðmund Reyni á heimasíðu félagsins og hann tekinn tali.

„Ég er fljótur, með gott úthald og einn af mínum styrkleikum er hversu vel ég get unnið með kantmanninum í sóknarleiknum,“ segir Guðmundur Reynir í viðtali á heimasíðu norska félagsins.

Guðmundur Reynir segist vita til þess að fleiri Íslendingar hafi spilað með liðinu. Þá kannist hann við Birki Má Sævarsson.

„Norska deildin er enn sterkari en sú íslenska. Mér finnst þetta vera skref fram á við en þó ekki of stórt skref,“ segir Guðmundur Reynir sem var á sínum tíma á mála hjá sænska félaginu GAIS.

Guðmundur Reynir kom til Bergen á þriðjudag og líst vel á borgina og félagið.

„Borgin er notaleg og fólkið er indælt. Mér finnst allar aðstæður til fyrirmyndar og leikvangurinn flottur,“ sagði Guðmundur Reynir sem hlakkar til að æfa með félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×