Skýrr býst við 900 gestum Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. ágúst 2011 20:00 Stefán Hrafn Hagalín er forstöðumaður samskiptasviðs Skýrr.
Búist er við 900 gestum á Haustráðstefnu Skýrr sem fram fer á föstudag eftir hálfan mánuð. „Þetta er einn stærsti viðburður vetrarins hér á landi í upplýsingatækni, enda um 60 fyrirlestrar í boði á 6 mismunandi fyrirlestralínum og um þriðjungur fyrirlesara eru erlendir sérfræðingar. Ég fullyrði ófeiminn að Haustráðstefna Skýrr veitir einstæða sýn á upplýsingatækni fyrir atvinnulífið og þar geta allir fundið eitthvað við hæfi, hvort heldur stjórnendur, almennt starfsfólk... eða nördar. Við eigum í stíl við það von á um 900 gestum," segir Stefán Hrafn Hagalín, forstöðumaður samskiptasviðs Skýrr, í tilkynningu. Lykilræðu á Haustráðstefnu Skýrr þetta árið flytur Jeff Wieland, stjórnandi hjá Facebook. Hann mun fjalla um þann starfsanda og vinnuferla, sem lagðir eru til grundvallar í menningu og uppbyggingu þessa samfélagsmiðlarisa. Wieland hefur starfað við samfélagsmiðlun hjá stórveldinu Facebook frá árinu 2006 - eða hartnær frá stofnun - og vinnur við hönnunarhlið verkefna þar. Þess er getið í frétttilkynningu Skýrr af ráðstefnunni að Jeff á íslenska móður, þannig að tengsl hans við Ísland eru mikil, þrátt fyrir að hann hafi búið vestan hafs alla ævi. Aðra lykilræðu flytur Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, og ræðir þar einstakt samstarfsverkefni CCP og Sony þar sem EVE Online-veröld á PC-tölvum bráðnar saman við skotleikinn Dust 514 á PlayStation3. Athygli vekur að meðal annarra fyrirlesara er Stefán Eiríksson lögreglustjóri, sem hyggst fjalla um Facebook- og Twitter-væðingu embættisins.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira