Tryggvi: Þetta var „soft“ víti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. ágúst 2011 20:59
Tryggvi Guðmundsson átti skrautlegan leik í kvöld. Hann skoraði mark úr víti sem hann viðurkennir að hafi ekki verið víti, skoraði mark með hnénu og fékk svo fjölda tækifæra til að innsigla þrennuna og jafna frægt markamet Inga Björns Albertssonar. Tryggvi og félagar hans í ÍBV unnu 3-1 sigur á Víkingi í Pepsi-deild karla í kvöld og var hann vitanlega sáttur við úrslitin. „Þetta var mjög sannfærandi sigur þó svo að þetta hafi ekki verið góður bolti í fyrri hálfleik. Við stjórnuðum þessu þó í seinni hálfleik enda galopnaðist leikurinn fyrir okkur eftir þær breytingar sem þeir gerðu,“ sagði Tryggvi en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. ÍBV fékk vítaspyrnu strax á sjöundu mínútu leiksins þegar að Mark Rutgers var dæmdur brotlegur í viðskiptum sínum við Tryggva. „Þetta var soft. Ég held að ég hafi frekar sparkað í Mark frekar en hann í mig. Ég stóð upp og hélt að dómarinn ætlaði annað hvort að dæma hornspyrnu eða útspark og svo bendir hann á punktinn.“ „En ég var alls ekki að fiska og alls ekki að biðja um víti. Þetta var mjög skrýtið, allt saman.“ Tryggvi lenti í svipuðum aðstæðum í leik ÍBV og KR á fimmtudaginn. „Nema að þá var það víti,“ sagði hann í léttum dúr. „Þetta var þó ekki víti og kannski er verið að jafna þetta út.“ Tryggvi lýsir því einnig í viðtalinu hvernig hann skoraði síðara markið sitt með hnénu en það var hans 125. mark á Íslandsmótinu frá upphafi. Hann vantar nú aðeins eitt mark upp á að jafna met Inga Björns Albertssonar en er þó orðinn þreyttur á umræðunni um metið. „Ég var ekki að hugsa um þetta met og er ekki hræddur við að það verði einhver pressa á mér að skora næsta mark. Ég elska pressu.“ „En það er búið að ræða um þetta met síðan ég fór í 100 mörk og eina ástæðan fyrir því að mig langar til að bæta þetta met er svo að þið getið hætt að tala um það.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ólympíuhöll brennur í Ríó Sport Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Golf Hafþór ætlar að slá tvö heimsmet í sömu vikunni Sport „Heppnir að tapa aðeins 2-0“ Fótbolti Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Handbolti Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Enski boltinn Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Enski boltinn „Á meðan það er tími á klukkunni þá er alltaf möguleiki til að vinna“ Sport Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Golf Spænsku stórliðin verða ekki með í stemningunni Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar efstir en Þórsarar neðstir í spánni 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „KR er ekkert að fara að slaka á og vera varfærnir“ Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spáin 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Sjá meira