Greining Arion banka spáir óbreyttum stýrivöxtum 10. ágúst 2011 13:00 Peningastefnunefnd Seðlabankans.
Greining Arion banka spáir óbreyttum stýrivöxtum á næsta vaxtákvörðunarfundi þann 17. ágúst n.k. Greining telur að við núverandi aðstæður í hagkerfinu myndi vaxtahækkun aðeins gera illt verra. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að í ljósi þeirrar stöðu sem hagkerfið er í um þessar mundir er það mat greiningarinnar að vaxtahækkun sé ekki til þess fallin að slá á auknar verðbólguvæntingar, ef eitthvað er gætu verðbólguhorfur versnað, þar sem fjármagnskostnaður hins opinbera og fyrirtækja hækkar. „Slík hækkun myndi hafa neikvæð áhrif á efnahagsuppbyggingu í landinu og þann brothætta bata sem framundan er. Þá yrði vaxtahækkun algjörlega á skjön við það sem er að gerast úti í heimi en biðstaða virðist vera á frekari vaxtahækkunum í Evrópu eftir hrun fjármálamarkaða síðustu daga,“ segir í Markaðspunktunum. „Þrátt fyrir að áhrif hrunsins sé ekki farið að gæta hér heima þá er óvissan enn mikil og telur greiningin að Seðlabanki Íslands muni fylgja öðrum seðlabönkum úti í heimi og kjósi þannig að rugga ekki bátnum á meðan óvissa ríkir á alþjóðamörkuðum.“ Þá kemur fram að verðbólgan sem gengur nú yfir er í afar litlum mæli drifin áfram af aukinni eftirspurn í hagkerfinu. Þær verðhækkanir sem eiga sér nú stað má að miklu leyti rekja til hækkunar á framboðshliðinni þar sem kostnaðarliðir eins og hækkandi hrávöruverði úti í heimi, veiking krónunnar, opinberar hækkanir og samningsbundnar launahækkanir er ýtt út í verðlagið. „Það er alveg ljóst að Seðlabankinn er að kljást við erfitt vandamál, vandamál sem stýrivextir hafa engin áhrif á...skýra liðir eins og eldsneyti, matvörur, rafmagn og hiti ríflega helming verðbólgunnar sem gengið hefur yfir á síðustu tólf mánuðum,“ segir í Markaðspunktunum. „Að mati greiningar er útlit fyrir að ársverðbólgan muni hækka á komandi mánuðum þar sem áhrifa vegna kjarasamninga sem og annarra kostnaðarhækkana eiga enn eftir að koma fram, en ef engir nýir kostnaðarliðir koma til þá er útlit fyrir að á endanum gangi verðbólgan niður og að efnahagsslakinn virki þá sem skyldi, þ.e. slakinn dregur úr frekari verðhækkunum í hagkerfinu.“
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira