Ólafur Örn: Aðalmálið að fá stig Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 15. ágúst 2011 22:50 Ólafur Örn Bjarnason. Mynd/Daníel
Ólafur Örn Bjarnason, þjálfari Grindavíkur, var augljóslega létt eftir sigurinn á Keflavík í kvöld þar sem liðið náði átta stiga forystu á Víking og Fram í fallsæti auk þess að ná Breiðabliki að stigum og vera aðeins stigi á eftir Þór og Keflavík. „Eins og staðan er í dag þá er númer eitt tvö og þrjú að fá stig og ef þú færð ágætisleik er það jákvætt. Það voru flottir punktar inn á milli, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem við vorum að gera góða hluti. Þetta var erfitt í seinni hálfleik með vindinn í bakið og þeir koma hátt á okkur og við náum aldrei að rúlla boltanum og vorum þvingaðir til að sparka langt fram sem er ekki uppskrift til árangurs með vindinn í bakið. En menn kláruðu færið sitt inni í teig og Óskar var góður í markinu. Það er margt jákvætt hægt að taka út úr þessum leik,“ sagði Ólafur en þolinmæði Grindavíkinga í vörninni skilaði stigunum þremur. „Við máttum auðvitað ekki fara út í einhverja vitleysu og henda mönnum fram. Keflavík eru góðir og skipulagðir og sækja hratt fram þannig að við þurftum að vera meðvitaðir um það en það er ekki aðalmálið hversu oft þú ert inni á þeirra vallarhelmingi eða hversu mikið þú ert með boltann heldur að klára færin sem maður fær og við kláruðum okkar færi.“ „Aðalmálið í augnablikinu er að fá stig, það er sama hvernig þú ferð að því. Nú geta menn farið að horfa upp fyrir sig. Það er ekki langt í nokkur lið og nú geta menn farið að hugsa meira upp á við en niður á við en fyrir lið í okkar stöðu skiptir öllu að fá stig,“ sagði Ólafur Örn að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira