Viðskipti innlent

ÍLS heldur vöxtum sínum óbreyttum

Íbúðalánasjóður (ÍLS) hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum og í samræmi við breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir og verði því sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,40% og 4,90% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Þessi ákvörðun tekur gildi í dag, 2. ágúst 2011.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að samkvæmt lögum um húsnæðismál  með síðari breytingum og samkvæmt reglugerðar  um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 29. júlí s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,51%.

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,45%, vegna útlánaáhættu 0,45% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×