Rúnar: Trúðum alltaf að við myndum sigra Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 7. ágúst 2011 22:47 Rúnar Kristinsson og Pétur Pétursson, þjálfarar KR. Mynd/Stefán
Rúnar Kristinsson þjálfari KR var að vonum ánægður eftir sigurinn á Víkingi í kvöld þar sem toppliðið þurfti virkilega að hafa fyrir sigrinum á liðinu í næst neðsta sæti. „Ég er virkilega sáttur við að við höldum áfram að reyna að sækja þessi þrjú stig þó við værum manni færri og mínir menn sýndu mikla baráttu og vilja þó þeir væru orðnir mjög þreyttir og lúnir þegar leið á. Innst inni trúðu þeir því allan leikinn að þeir gætu skorað og unnið leikinn og það lýsir sjálfstraustinu, viljanum og gleðinni í liðinu,“ sagði Rúnar að leiknum loknum. „Við náðum að halda boltanum ágætlega og meðan að við gerum það gátu menn hvílt sig aðeins. Menn gerðu það nokkuð vel í seinni hálfleik. Víkingar komu nokkuð á óvart að pressa ekki meira en þeir gerðu og leyfðu okkur að hafa boltann en við erum með mikið sjálfstraust og þora að halda boltanum og spila honum á milli sín og gerðu Víkingum erfitt fyrir að ná boltanum.“ Fyrr í dag gerðu ÍBV og Valur jafntefli og vissu KR-ingar því að þeir gætu náð fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar auk þess að eiga leik til góða með sigri í kvöld. „Það er ekkert sérstaklega gott fyrir þjálfarann að ganga inn í klefann og allir vissu hvernig hinn leikurinn fór. Það vissu allir að við gátum sótt okkur smá forystu en það er alltaf hættulegt. Menn geta ekki treyst á hin liðin, við verðum að treysta á okkur sjálfa. Ef við förum ekki út á völlinn og vinnum okkar vinnu þá vinnum við aldrei neitt. Ég lagði áherslu á það fyrir leikinn. Hvort hin liðin misstíga sig eða ekki, við getum ekkert gert í því, við getum bara séð til þess að við vinnum okkar leiki og sjáum svo hverju það skilar okkur.“ Framganga Víkinga í leiknum kom Rúnari ekki á óvart. „Það hefur verið stígandi í þeirra leik eftir að Bjarnólfur tók við og þeir vörðust fimlega. Svo lendum við auðvitað í því að fá rautt spjald á okkur. Ég held að dómarinn hafi gert hárrétt í því. Guðmundur fór í glórulausa tæklingu. Honum fannst sjálfur að hann hafi tekið boltann en hann sýndi marga takka. Í þessu tilfelli sá dómarinn ástæðu til að reka hann útaf þó maður hafi séð menn sleppa með svona tæklingar.“ Þetta rauða spjald hefur þær afleiðingar fyrir KR og Guðmund að hann missir af bikarúrslitaleiknum gegn Þór á laugardaginn. „Það er mjög slæmt að missa Guðmund Reyni í bikarúrslitaleik en ég verð að treysta þeim mönnum sem ég er með. Ég er með breiðan og góðan hóp, fullt af góðum leikmönnum og ég treysti þeim til að fylla þau skörð sem í liðið eru höggin,“ sagði Rúnar að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira