Íslenski boltinn

Þorvaldur: Úrslitin ekki að falla með okkur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorvaldur Örlygsson var ekki sáttur við jafntefli Framara gegn Grindavík í kvöld. Leikurinn var afar þýðingamikill enda liðin í botnsætunum, Grindvíkingar þó með 5 stigum meir en Framarar.

„Við höfum þurft þrjú stig áður en í dag en það kom ekki í dag, nei,“ sagði Þorvaldur.

Margir vilja meina að leikurinn í kvöld hafi verið sex stiga leikur.

„Það kemur í ljós í lok mótsins. Okkur vantar stig hvort sem það er í dag, síðasta leik eða næsta. Það er augljóst mál að við þurfum stig. Það sést á töflunni. Hvort það kallast sex stig eða ekki þurfum við að safna stigum. Við fengum allavegna eitt stig í dag. Það er betra en við höfum gert undanfarið,“ sagði Þorvaldur.

Aðspurður hvort hann sæi bætingu í leik liðsins sagði Þorvaldur:

„Ég sé ekki bætingu í leik liðsins. Við erum búnir að spila vel undanfarna fjóra fimm leiki. Við erum að spila ágætlega en úrslitin ekki að falla með okkur. Við erum að fá færi í fyrri hálfleik til þess að klára leikinn. Sama var í síðasta leik á móti Keflavík. Við áttum að vera tvö til þrjú núll yfir í hálfleik. Sama í dag. Hitt liðið kemst inn í leikinn og leikurinn opnast. Þá er hætta að missa leikinn niður. Þá getur þetta dottið báðum megin en okkur vantar að klára leikina,“ sagði Þorvaldur.

Skotinn Steven Lennon gengur til liðs við Framara þegar félagaskiptaglugginn opnar í júlí. Þorvaldur getur ekki svarað því hvort hann sé mögulegur bjargvættur Safamýrapilta.

„Ég get ekki svarað því í dag. Það er ómögulegt. Hvort sem menn koma inn í hóp eða ekki heldur hópurinn áfram að berjast og við ætlum að reyna að bjarga okkur,“ sagði Þorvaldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×