Íslenski boltinn

Ásmundur: Þeir fengu ódýrt víti

Henry Birgir Gunnarsson á Fjölnisvelli skrifar
Ásmundur á hliðarlínunni í dag.
Ásmundur á hliðarlínunni í dag. mynd/vilhelm
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, var ekki sáttur við vítið sem Þóroddur Hjaltalín dæmdi á hans menn í dag. Úr því komust Eyjamenn yfir og þeir unnu að lokum leikinn, 1-2.

"Mér fannst dómarinn falla í gryfju í þessu víti. Það var mjög ódýrt og opnaði leikinn," sagði Ásmundur og hafði nokkuð til síns máls enda féll Denis Sytnik við litla snertingu.

Ásmundur hefur gert magnaða hluti með 1. deildarlið Fjölnis og í tvígang komið liðinu í bikarúrslit. Bikarævintýrið er aftur á móti búið í ár.

"Það hefði verið gaman að komast lengra og við fengum tækifæri til þess að gera betur í þessum leik," sagði Ásmundur en hann vissi vel að hans menn fengu fínt færi í dag enda virtust Eyjamenn vera með hugann við Evrópuleikinn í vikunni.

"Við áttum tækifæri. ÍBV er með frábært lið en okkar möguleiki lá í því að þeir væru að hugsa of mikið um Evrópuleikinn. Við gáfum allt en það dugði ekki til."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×