Sérfræðingar spá yfir 4% verðbólgu í júní 23. júní 2011 08:12
Greiningar Arion banka og Íslandsbanka gera báðar ráð fyrir því að verðbólgan muni mælast yfir 4% í þessum mánuði. Nokkur munur er á spám þeirra, greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að verðbólgan fari í 4,1% en Arion banka að hún fari í 4,3%. Verðbólgan mældist 3,4% í síðasta mánuði. Í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka segir að það sé einna helst fernt sem veldur hækkun vísitölunnar á milli maí og júní. Er það hækkun húsnæðisverðs, veiking krónu að undanförnu, kjarasamningsbundnar launahækkanir og hrávöruverðshækkanir. Í Markaðspunktum greiningar Arion banka segir að greiningin geri ráð fyrir að fyrstu kostnaðarhækkanir vegna kjarasamninga komi fram í júní. „Þá er einnig líklegt að kaupmenn nýti tækifærið og ýti öðrum kostnaðarhækkunum út í verðlagið m.a. vegna veikingar krónunnar og hrávöruverðshækkana úti í heimi. Umtalsverð hækkun mældist á verði íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu í maí sl. – því má búast við sterkum áhrifum vegna húsnæðisliðar í næstu verðbólgumælingu Hagstofunnar,“ segir í Markaðspunktunum. Síðan segir greining Arion banka að ársverðbólga færist sífellt fjær verðbólgumarkmiði Seðlabankans og útlit er fyrir að verðbólgumarkmiði verði ekki náð á komandi mánuðum. „Talsverð kostnaðarverðbólga er framundan að okkar mati þar sem áhrif vegna launahækkana, hækkandi hrávöruverðs og veikingar krónunnar eiga eftir að koma fram. Þá er fasteignaverð farið að hækka á ný og mun því húsnæðisliðurinn halda áfram að hafa áhrif til hækkunar á verðbólgutölum. Gangi bráðabirgðaspá okkar eftir verður tólf mánaða verðbólga komin í 5,2% í september,“ segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Atvinnulíf Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Atvinnulíf Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Brú Talent kaupir Geko Consulting Viðskipti innlent Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Sjá meira