Íslenski boltinn

Þórsarar náðu í gott útivallarstig

Þór náði 1-1 jafntefli gegn Fylki í Árbænum í gær þrátt fyrir að heimamenn hafi fengið fjölmörg færi til að skora fleiri mörk í leiknum.

Sveinn Elías Jónsson kom Þór yfir á 8. mínútu en Albert Brynjar Ingason jafnaði metin fyrir Fylki aðeins þremur mínútum síðar.

Þórsarar náðu svo að standa af sér áhlaup Fylkismanna og sáu til þess að nýliðarnir töpuðu ekki leik allan júnímánuð, hvorki í deild né bikar.

Anton Brink, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á vellinum í gær og tók þessar myndir.

Mynd/Anton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×