Íslenski boltinn

Willum: Gerum okkur seka um fáránleg mistök

Stefán Árni Pálsson á Kopavogsvelli skrifar
„Það er alltaf ömurlegt að tapa og sérstaklega í leik þar sem við áttum fína möguleika," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflvíkinga, eftir leikinn.

„Við náðum góðri forystu og erum með fín tök á leiknum, en síðan gleyma leikmenn sér aðeins í lok hálfleiksins og þeir ná að jafna metin".

„Mínir menn vilja aftur á móti meina það að það hafi verið brotið illilega á þeim í aðdraganda marksins. Í seinna marki Blika gerum við okkur seka um alveg fáránleg mistök eftir að hafa unnið varnarvinnuna vel alveg fram að því".

„Við getum ekki fengið á okkur mark þar sem andstæðingur vinnur skallaeinvígi og kemur boltanum inn fyrir vörn okkar, það bara gengur ekki".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×