Íslenski boltinn

Kári: Þurfum allaf að berjast og djöflast

Stefán Árni Pálsson á Kópavogsvelli skrifar
„Þetta var mjög kærkomið og ég er ánægður með vinnuframlagið og baráttan sem sást á leik okkar í kvöld,“ sagði Kári Ársælsson, fyrirliði Blika,  eftir sigurinn í kvöld. Breiðablik vann frábæran sigur, 2-1, gegn Keflavík í kvöld, en liðið hefur átt erfitt uppdráttar í sumar.

„Það hefur vantaði ákveðna stemningu í liðið í sumar og það var til staðar í kvöld og þegar slíkt fer saman við baráttu og dugnað þá vinnum við leiki“.

„Við vorum búnir að vinna í sjálfum okkur fyrir leikinn í kvöld og fara vel í gegnum það sem hefur verið að fara úrskeiðis að undanförnu“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×