Enski boltinn

Abdoulaye Faye til West Ham

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Faye fagnar í búningi Stoke
Faye fagnar í búningi Stoke Mynd/Nordic Photos/Getty
Sam Allardyce hefur tryggt sér þjónustu varnarmannsins stæðilega Abdoulaye Faye. Leikmaðurinn kemur til liðsins á frjálsri sölu en Stoke vildi ekki endurnýja samninginn við leikmanninn.

Allardyce hefur tvívegis áður keypt senegalska landsliðsmanninn. Fyrst til Bolton og síðar til Newcastle. Nú er Faye kominn til Hamranna og líst vel á aðstæður.

„Ég er mjög ánægður að vera kominn til West Ham. Þetta er frábært félag, stórt félag og ég get ekki beðið eftir því að byrja,“ sagði Fayer í viðtali við heimasíðu West Ham.

Miðvörðurinn sem er orðinn 33 ára gamall hefur skorað ófá mörkin í gegnum tíðina eftir föst leikatriði.

„Fólk er kannski undrandi fyrst liðið er í Championship-deildinni en mér finnst það góð áskorun að hjálpa liðinu að komast aftur í úrvalsdeildina. Þar á félagið heima.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×