Stýrivextir óbreyttir 15. júní 2011 10:15 Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, og Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, á fundi með blaðamönnum í dag. Stýrivextir verða áfram 4,25%.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana verða áfram 3,25%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,0%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 4,25% og daglánavextir 5,25%. Verðbólguhorfur hafa versnað frá síðasta fundi peningastefnunefndar, a.m.k. til skemmri tíma, og raunvextir Seðlabankans lækkað. Nýjar upplýsingar sem hafa birst frá síðustu vaxtaákvörðun breyta ekki horfum um hagvöxt og atvinnu. Hins vegar benda nýlegar yfirlýsingar til að horfur séu á meiri slaka í ríkisfjármálum en áður var gert ráð fyrir. Verðbólga hefur aukist undanfarna fjóra mánuði. Tólf mánaða verðbólga mældist 3,4% í maí og er gert ráð fyrir að verðbólga verði áfram nokkuð mikil út næsta ár. Hins vegar er kjarnaverðbólga við verðbólgumarkmiðið. Meiri verðbólga skýrist m.a. af lágu gengi krónunnar og nýlegum verðhækkunum hrá- og olíuvöru. Haldist gengi krónunnar stöðugt og að því marki sem verðhækkanirnar reynast tímabundnar er ólíklegt að þær hafi langvarandi áhrif á verðbólgu. Miðað við núverandi gengi krónunnar virðast hins vegar launahækkanir sem felast í nýgerðum kjarasamningum vera meiri en samræmist verðbólgumarkmiðinu til lengdar. Þegar efnahagsbatinn færist í aukana gæti launaþrýstingur frá útflutningsgeiranum leitt til aukinna langtímaverðbólguvæntinga. Til þess að draga úr líkum á því að það gerist gæti reynst nauðsynlegt að auka aðhald peningastefnunnar á næstunni, en ákvarðanir í peningamálum munu sem fyrr taka mið af nýlegri þróun og horfum. Peningastefnunefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið.
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira