Umfjöllun: KR-ingar geta þakkað Tryggva fyrir stigið Kolbeinn Tumi Daðason á Stjörnuvelli skrifar 22. maí 2011 13:48
Rautt spald Tryggva Sveins Bjarnasonar hálftíma fyrir leikslok var vendipunkturinn í 1-1 jafntefli Stjörnunnar og KR í Garðabænum í kvöld. Marki yfir tók Tryggvi slæma ákvörðun sem kom hans fyrrum félögum í Vesturbænum til góða. Eftir bragðdaufan fyrri hálfleik blésu Stjörnumenn, með vindinn í bakið, til sóknar í seinni hálfleik. Pressan skilaði sér í glæsilegu marki Jespers Holdt Jensen og staða Stjörnumanna góð. Þeir hefðu getað bætt við marki þegar Hannes Þór Halldórsson varði langskot Garðars Jóhannssonar utan af velli með miklum tilþrifum. Þegar hálftími var til leiksloka tóku áhorfendur andköf þegar Tryggvi Sveinn Bjarnason lék á hvern KR-inginn á fætur öðrum með glæsilegum tilþrifum. Því miður fyrir Tryggva missti hann boltann frá sér og tilraun hans til að ná boltanum aftur var háskaleg. Seinna gula spjald hans í leiknum og Stjörnumenn manni færri. Skömmu síðar fór Garðar Jóhannsson meiddur af velli og vonandi fyrir Garðbæinga að meiðsli hans séu ekki alvarleg. KR-ingar voru fljótir að nýta sér liðsmuninnn. Óskar Örn átti flotta sendingu á kollinn á varamanninum Gunnari Erni Jónssyni sem skallaði knöttinn þvert á Kjartan Henry sem skoraði fínt skallamark. KR-ingar réðu lögum og lofum það sem eftir lifði leiks án þess að skapa sér færi. Kjartan Henry fékk þeirra skásta færi en afar slakt skot hans skapaði engin vandamál fyrir Magnús í marki Stjörnumanna. Stjörnumenn börðust fyrir stiginu, fóru reyndar nokkrir í bókina hjá Magnúsi dómara, en uppskáru sanngjarnt stig. KR er ósigrað að loknum fimm leikjum en naga sig eflaust í handarbökin að hafa ekki nýtt sér liðsmuninn betur. Stjörnumenn eru ósigraðir í fjórum leikjum og halda áfram að koma á óvart. Tölfræðin úr leiknumStjarnan-KR 1-1 1-0 Jesper Holdt Jensen (50.) 1-1 Kjartan Henry Finnbogason (68.) Tryggvi Sveinn Bjarnason rautt spjald (62.) Áhorfendur: 921 Dómari: Magnús Þórisson 7 Skot (á mark): 8-7 (4-3) Varin skot: Magnús 2 – Hannes Þór 2 Horn: 7-8 Aukaspyrnur fengnar: 13-11 Rangstöður: 4-2Stjarnan (4-3-3) Magnús Karl Pétursson 6 Baldvin Sturluson 5 (90. Aron Grétar Jafetsson) Tryggvi Sveinn Bjarnason 4 Nikolaj Hagelskjaer Pedersen 6 Hörður Árnason 6 Daníel Laxdal 7 Þorvaldur Árnason 5Jesper Holdt Jensen 7*maður leiksins Jóhann Laxdal 6 Halldór Orri Björnsson 5 Garðar Jóhannsson 5 (64. Björn Pálsson 5 ) KR (4-3-3) Hannes Þór Halldórsson 7 Dofri Snorrason 6 Skúli Jón Friðgeirsson 5 Grétar Sigfinnur Sigurðarson 5 Guðmundur Reynir Gunnarsson 6 Ásgeir Örn Ólafsson 6 Bjarni Eggerts Guðjónsson 6 Viktor Bjarki Arnarsson 5 (64. Gunnar Örn Jónsson 5) Kjartan Henry Finnbogason 6 Óskar Örn Hauksson 5 Guðjón Baldvinsson 4 (64. Baldur Sigurðsson 5)
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Daníel Laxdal: Veit ekki einu sinni hvort hinir voru mættir Daníel Laxdal fyrirliði Stjörnunnar var sáttur við jafnteflið í leikslok. "Við áttum klárlega að taka þessi þrjú stig. En það var svolítið erfitt eftir að við urðum manni færi, þá sóttu þeir stíft og þá var jafntefli kannski ágætt úr því sem var komið.“ 22. maí 2011 23:08 Rúnar: Ég held ég verði að vera sáttur með eitt stig Rúnar Kristinsson var nokkuð sáttur með eitt stig í leikslok." Já ég held ég verði að vera það. Þetta var mjög erfiður leikur. Stjörnumenn voru mjög grimmir og léku fínan leik og við áttum í mesta basli með þá. Það var svo sem vitað fyrir fram að þetta yrði erfitt. Ég held ég verði að vera sáttur með eitt stig." 22. maí 2011 23:45 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira
Daníel Laxdal: Veit ekki einu sinni hvort hinir voru mættir Daníel Laxdal fyrirliði Stjörnunnar var sáttur við jafnteflið í leikslok. "Við áttum klárlega að taka þessi þrjú stig. En það var svolítið erfitt eftir að við urðum manni færi, þá sóttu þeir stíft og þá var jafntefli kannski ágætt úr því sem var komið.“ 22. maí 2011 23:08
Rúnar: Ég held ég verði að vera sáttur með eitt stig Rúnar Kristinsson var nokkuð sáttur með eitt stig í leikslok." Já ég held ég verði að vera það. Þetta var mjög erfiður leikur. Stjörnumenn voru mjög grimmir og léku fínan leik og við áttum í mesta basli með þá. Það var svo sem vitað fyrir fram að þetta yrði erfitt. Ég held ég verði að vera sáttur með eitt stig." 22. maí 2011 23:45