Til hamingju með daginn! Ragna Sara Jónsdóttir skrifar 8. mars 2011 06:00 Í dag 8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Í ár er þessum degi fagnað í 100. skipti og eru hátíðahöld og baráttugöngur haldnar víða um heim í tilefni dagsins. Það óréttlæti og þau höft sem konur búa við víða um heim eru með öllu óásættanleg. En dropinn holar steininn og baráttan skilar árangri. Árið 2010 var mikilvægt fyrir jafnréttisbaráttu heimsins. Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna runnu fjórar stofnanir sem vinna að réttindum kvenna saman í eina og var stofnunin formlega sett á fót 24. febrúar síðastliðinn. Með sameiningunni varð UNIFEM að UN WOMEN og gefa breytingar þessar jafnréttisbaráttu og frelsisbaráttu kvenna um allan heim aukið vægi. Það er von okkar að stofnun UN Women verði til heilla fyrir þær milljónir kvenna sem lifa við óásættanlegar aðstæður, mannréttindabrot, höft og ofbeldi. Með UN Women er aukinn kraftur settur í baráttu fyrir því að Þúsaldarmarkmið um þróun, sem tengjast konum, náist fyrir árið 2015. Þátttaka kvenna í atvinnulífi og frumkvöðlastarfsemi er efld, og barátta gegn kynbundnu ofbeldi einnig. Landsnefnd UNIFEM á Íslandi, nú Landsnefnd UN Women á Íslandi tekur fullan þátt í þeim áherslubreytingum sem eiga sér stað innan Sameinuðu þjóðanna og setur enn meiri kraft í starfsemi félagsins hér heima. Íslendingar sýna þessari baráttu mikinn skilning og aldrei hafa fleiri stutt samtökin hérlendis en einmitt nú í ár. Yfir 1100 einstaklingar hafa gengið í Systralag UN Women og styrkja „systur" sínar í fjölmörgum löndum heims með föstum mánaðarlegum greiðslum. Íslensk fyrirtæki hafa einnig tekið skref sem miða að því að styrkja jafnréttismál innan sinna eigin veggja. Þrjú íslensk fyrirtæki voru stofnaðilar að Jafnréttissáttmála UN Women sem landsnefndin ýtti úr vör í nóvember 2010 og listi fyrirtækja sem undirrita sáttmálann hérlendis lengist sífellt. Við hjá UN Women á Íslandi trúum því að nýju landslagi fylgi aukin tækifæri sem munu skila sér í betri lífsskilyrðum kvenna víða um heim. Íslenskri landsnefnd UN Women þykir viðeigandi að fagna þessum sögulega viðburði á alþjóðlegum degi kvenna. Af þessu tilefni höfum við fengið listakonuna Kitty Von-Sometime og gjörningahópinn WEIRD GIRLS PROJECT til liðs við okkur. Við bjóðum öllum að koma og fagna með okkur í dag klukkan 17.15 að Laugavegi 19 og líta á afrakstur þeirrar samvinnu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Í dag 8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Í ár er þessum degi fagnað í 100. skipti og eru hátíðahöld og baráttugöngur haldnar víða um heim í tilefni dagsins. Það óréttlæti og þau höft sem konur búa við víða um heim eru með öllu óásættanleg. En dropinn holar steininn og baráttan skilar árangri. Árið 2010 var mikilvægt fyrir jafnréttisbaráttu heimsins. Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna runnu fjórar stofnanir sem vinna að réttindum kvenna saman í eina og var stofnunin formlega sett á fót 24. febrúar síðastliðinn. Með sameiningunni varð UNIFEM að UN WOMEN og gefa breytingar þessar jafnréttisbaráttu og frelsisbaráttu kvenna um allan heim aukið vægi. Það er von okkar að stofnun UN Women verði til heilla fyrir þær milljónir kvenna sem lifa við óásættanlegar aðstæður, mannréttindabrot, höft og ofbeldi. Með UN Women er aukinn kraftur settur í baráttu fyrir því að Þúsaldarmarkmið um þróun, sem tengjast konum, náist fyrir árið 2015. Þátttaka kvenna í atvinnulífi og frumkvöðlastarfsemi er efld, og barátta gegn kynbundnu ofbeldi einnig. Landsnefnd UNIFEM á Íslandi, nú Landsnefnd UN Women á Íslandi tekur fullan þátt í þeim áherslubreytingum sem eiga sér stað innan Sameinuðu þjóðanna og setur enn meiri kraft í starfsemi félagsins hér heima. Íslendingar sýna þessari baráttu mikinn skilning og aldrei hafa fleiri stutt samtökin hérlendis en einmitt nú í ár. Yfir 1100 einstaklingar hafa gengið í Systralag UN Women og styrkja „systur" sínar í fjölmörgum löndum heims með föstum mánaðarlegum greiðslum. Íslensk fyrirtæki hafa einnig tekið skref sem miða að því að styrkja jafnréttismál innan sinna eigin veggja. Þrjú íslensk fyrirtæki voru stofnaðilar að Jafnréttissáttmála UN Women sem landsnefndin ýtti úr vör í nóvember 2010 og listi fyrirtækja sem undirrita sáttmálann hérlendis lengist sífellt. Við hjá UN Women á Íslandi trúum því að nýju landslagi fylgi aukin tækifæri sem munu skila sér í betri lífsskilyrðum kvenna víða um heim. Íslenskri landsnefnd UN Women þykir viðeigandi að fagna þessum sögulega viðburði á alþjóðlegum degi kvenna. Af þessu tilefni höfum við fengið listakonuna Kitty Von-Sometime og gjörningahópinn WEIRD GIRLS PROJECT til liðs við okkur. Við bjóðum öllum að koma og fagna með okkur í dag klukkan 17.15 að Laugavegi 19 og líta á afrakstur þeirrar samvinnu.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun