Atvinnuleysi með minnsta móti Hafsteinn G. Hauksson skrifar 26. nóvember 2011 12:15 Atvinnuleysið er einna mest í byggingageiranum á Íslandi
Atvinnuleysi á Íslandi var í minni kantinum samanborið við önnur Evrópuríki á síðasta ári. Óvíða var atvinnuleysið minna en á íslensku landsbyggðinni. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, en þar er svæðisbundið atvinnuleysi síðasta árs í 271 héraði innan 34 landa í Evrópu skoðað. Atvinnuleysi jókst frá árinu áður í 2/3 þeirra héraða sem skoðuð voru, en Ísland er þar engin undantekning. Á Íslandi var atvinnuleysið 7,6 prósent á síðasta ári. Í gögnum Eurostat kemur fram að atvinnuleysið hafi verið meira en svo í 19 löndum Evrópu, og þar með minna í 14 löndum. Á íslensku landsbyggðinni var atvinnuleysið aðeins 5,5 prósent, en svæðisbundið atvinnuleysi var óvíða minna í Evrópu. Landsbyggðin kemst þó ekki á topp 10 lista Eurostat yfir besta atvinnuástandið, en þar tróna á toppnum Zeeland svæðið í Hollandi, og Bolzano á Ítalíu, þar sem atvinnuleysið mælist aðeins 2,7 prósent. Versta atvinnuástandið er í Réunion í Frakklandi, þar sem þrír af hverjum tíu eru atvinnulausir. Í hópi ungs fólks voru þrír af hverjum tuttugu atvinnulausir á Íslandi. Þeir geta þó prísað sig sæla að búa ekki í Ceuta héraðinu á Spáni þar sem hlutfallið var fjórfalt hærra, en hvergi var jafnmikið af ungu fólki atvinnulaust í allri Evrópu.
Mest lesið Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Atvinnulíf Starbucks opnaði á Laugarvegi í dag Viðskipti innlent Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Rafbílasala tekur við sér en nær enn ekki fyrri hæðum Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Arctic Fish fær heimild til frekara fiskeldis Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Verðbólgan úr 3,8 prósentum í 4,2 prósent Alltof margir sem sitja eftir með sárt ennið Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Sjá meira