Hreiðar Levý: Erum orðnir nettar hetjur í bænum Hjalti Þór Hreinsson skrifar 5. júní 2010 07:00
Hreiðar Levý Guðmundsson spilar í dag með Emsdetten gegn Bergischer um sæti í úrslitarimmu við Dormagen um laust sæti í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta á næsta tímabili. Emsdetten vann fyrri leikinn 33-27 og er því í vænlegri stöðu. „Við vorum komnir níu mörkum yfir þegar það voru sex mínútur eftir, þetta hefði því getað verið betra en var nokkuð gott," sagði Hreiðar Levý Guðmundsson markmaður Emsdetten. Patrekur Jóhannesson tekur við liðinu í sumar og Fannar Þór Friðgeirsson gengur í raðir þess á sama tíma. „Það er fínasta sjálfstraust í liðinu fyrir leikinn. Fyrir mína parta vil ég bara fara í leikinn og vinna hann, við viljum ekki halda neinu forskoti eða neitt slíkt. Liðið er líka búið að vinna 18 af síðustu 20 leikjum og við viljum ekki tapa neinu þar," sagði Hreiðar sem segir fyrri leikinn hafa verið einn þann allra skemmtilegasta sem hann hefur spilað með félagsliði. „Það voru um 4.000 manns í húsinu. Það var bara trufluð stemning, algjörlega trufluð. Áhorfendur eru nálægt vellinum og líklega kemst úrslitaleikurinn í Svíþjóð sem ég spilaði næst þessu, en við töpuðum þar svo þetta var kannski skemmtilegra." „Við höfum verið að berjast fyrir þessu allan veturinn og þetta er besti árangur félagsins í sögunni. Það hefur verið í einhver 20 ár í þessari deild held ég. Við erum líka nettar hetjur hérna í bænum," sagði Hreiðar hress. Tímabilið hefur verið langt og strangt hjá landsliðsmanninum en hann segist fá aukakraft í útihlaupunum þegar hann sér fyrir endann á tímabilinu. Fram undan eru jú mikilvægustu leikir tímabilsins. „Ég spila seinni leikinn, svo kem ég heim á sunnudaginn og spila leikina tvo gegn Dönum í næstu viku og fer svo vonandi strax aftur út til að spila við Dormagen á sunnudaginn," sagði Hreiðar sem segir að þetta sé ekkert of mikið fyrir sig, enda í besta formi.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira