Störf í heilbrigðisþjónustunni 1. mars 2010 10:07 Fall er fararheill segir máltækið og á vonandi við um Ólaf Þ.Stephensen sem skrikar fótur í fyrsta leiðara sínum sem ritstjóri Fréttablaðsins. Hann staðhæfir þar ranglega að Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, hyggist setja "hundrað milljónir króna" í nýjan einkaspítala. Fram hefur komið að framlagið er tíföld þessi upphæð. Forsvarsmenn verkefnisins segja að þarna muni skapast 300 ný störf sem komi til með að gefa af sér 300 milljónir króna á ári í skatttekjur. Við þessu tekur ritstjórinn gagnrýnislaust og gengur leiðarinn síðan út á að sýna að Vinstrihreyfingin grænt framboð sé andvíg atvinnuuppbyggingu - og það sem verra er, í heilbrigðisþjónustu! Í samræmi við þetta ber leiðarinn yfirskriftina "Kreddur gegn atvinnu".Það er alvarleg ásökun að bera fólki á brýn að það sé andvígt atvinnuuppbyggingu og að fordómar komi í veg fyrir að sköpuð séu ný atvinnutækifæri fyrir heilbrigðisstarfsfólk.Staðreyndir málsins eru þessar: Mesta kreppa í íslensku efnahagslífi á síðari tímum hefur valdið tekjuhruni hjá ríki og sveitarfélögum. Af þeim sökum hefur þurft að draga stórlega úr útgjöldum og hækka skatta. Þó ekki meira en svo að halli á fjárlögum á næsta ári verður á annað hundrað milljarða. Heilbrigðiskerfið fer því miður ekki varhluta af þessum hremmingum. Niðurskurðurinn þar veldur samdrætti í umfangi þjónustunnar og þar með fækkun starfa á sumum sviðum - vonandi tímabundið. Að mínum dómi er hverri krónu sem ver störf í heilbrigðisþjónustunni vel varið - og atvinnuúrræði í sjálfu sér.Spurningin snýst þá um þetta: Hvernig er fjármunum best varið innan heilbrigðisþjónustunnar til þess að tryggja sem besta þjónustu og sem flest störf?Þetta telur ritstjóri Fréttablaðsins að nýr einkaspítali muni gera ágætlega, sjúklingar verði fluttir inn til landsins og við getum nýtt íslenska starfskrafta sem ella yrðu vannýttir. Starfseminni fylgi gjaldeyristekjur.Er þetta virkilega svona einfalt? Nægir að fá aðstoð ríkisins við uppbyggingu sjúkrahússins og að síðan verði starfsemin sjálfbær, ríkisjóður komi hvergi nærri þar eftir, hafi þvert á móti tekjur af starfseminni? Og hvað með hina erlendu greiðendur, til dæmis sjúkratryggingar á Norðurlöndum, er sátt um þetta fyrirkomulag?Ástæðan fyrir því að ég fer fram mjög ákveðið með varnaðarorð á þessu stigi er sú, að ég tel að þetta standist ekki skoðun, ríkið komi til með að þurfa fjármagna starfsemina að verulegu leyti.Ég hef ítrekað, fyrr og nú, vakið athygli á því að ýmsum spurningum þurfi að svara áður en haldið er lengra út í þetta einkavæðingarferli. Þær snúa bæði að aðgengi að heilbrigðiskerfi okkar og einnig að pyngju skattborgarans: Munu íslenskir sjúklingar geta sótt lækningu á nýja sjúkrahúsinu? Koma íslenskar sjúkratryggingar til með að borga? Hvaða lög og reglur gilda um EES-sjúklingana? Hvað um réttindi þeirra sjúklinga?Þegar íslenskir útrásarfjárfestar komust yfir búlgarska símann fyrir fáeinum árum skrifaði ég greinar í þetta blað þar sem ég minnti á að hið sama ætti að gilda gagnvart erlendum samfélögum og okkur sjálfum. Við ættum með öðrum orðum að koma fram við aðra einsog við vildum að komið væri fram gagnvart okkur sjálfum. Þetta á einnig við nú. Við Íslendingar erum ekki ein um að þurfa að skera niður útgjöld í velferðarþjónustu og leita allra leiða til að nýta hverja krónu sem best.Tilraunir til hagræðingar og sparnaðar eru stöðugt á vinnsluborðinu út um allan heim, m.a. í grannlöndum okkar. Hér á landi nálgumst við óðfluga sársaukamörk í niðurskurði innan heilbrigðiskerfisins og þurfum því að hyggja mjög yfirvegað að framhaldinu, samstillingu þjónustustiga og skörun almannaþjónustu og einkareksturs. Nýta þarf hverja krónu til hins ýtrasta og helst tvisvar ef hægt væri. Mesta sóunin er í ósamstilltu heilbrigðiskerfi. Þetta þekkjum við einnig úr umræðum um heilbrigðismál í grannlöndum okkar.Rétt er að spyrja hvort það verði okkur til framdráttar - nú þegar sárlega vantar siðferðisvottorðin - að bjóða hér upp á eins konar "aflandsheilbrigðisþjónustu" sem ekki er svigrúm til að vinna í heimalandi sjúklinga en senda heimalandi þeirri hvort eð er reikninginn! Er ekki nóg komið af slíkum strandhöggum? Útflutningur og innflutningur á heilbrigðisþjónustu eða sjúklingum getur verið spennandi valkostur en það þarf að gerast í nánu samstarfi við þær þjóðir sem í hlut eiga og þá jafnan með það að leiðarljósi að grafa ekki undan velferðarþjónustu þeirra.Höfundur er fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fimmtán algengar rangfærslur um loftslagsbreytingar – og hvað er rétt Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hefur þú rétt fyrir þér? Svarið er já Jón Pétur Zimsen Skoðun Þegar höggbylgjan skellur á Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Leiðtogi Gunnar Salvarsson Skoðun Hinsegin Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Öryggið á nefinu um áramótin Eyrún Jónsdóttir,Ágúst Mogensen Skoðun Sögulegt ár í borginni Skúli Helgason Skoðun Markmiðin sem skipta máli Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason Skoðun Skoðun Skoðun Hinsegin Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Leiðtogi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Sögulegt ár í borginni Skúli Helgason skrifar Skoðun Fimmtán algengar rangfærslur um loftslagsbreytingar – og hvað er rétt Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Öryggið á nefinu um áramótin Eyrún Jónsdóttir,Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Þegar höggbylgjan skellur á Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hefur þú rétt fyrir þér? Svarið er já Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Markmiðin sem skipta máli Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Netverslun með áfengi og velferð barna okkar Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Stingum af Einar Guðnason skrifar Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason skrifar Skoðun Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í mikilli sókn Orri Björnsson skrifar Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Verðmæti dýra fyrir jörðina er ekki mælanlegt í krónum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Staða eldri borgara á Íslandi í árslok 2025 Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Landhelgisgæslan er óábyrg Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Kristinn Árni Hróbjartsson skrifar Skoðun Kolefnissporið mitt Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson skrifar Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Fimmtán algengar rangfærslur um loftslagsbreytingar – og hvað er rétt Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar